Eins og nafnið gefur til kynna verður hún sú fjórða í seríunni en hinar þrjár slógu í gegn um allan heim.
Fyrsta Toy Story myndin kom út árið 1995. Leikstjóri þeirrar myndar, John Lasseter, sest aftur í leikstjórastólinn fyrir fjórðu myndina. Síðasta Toy Story mynd kom út árið 2010 en þá var það Lee Unkrich, sem leikstýrði meðal annars Finding Nemo og Monsters Inc., sem leikstýrði.
Nú er komin út glæný stiklan úr fjórðu myndinni í röðinni og má greinilega búast við góðum skammti fyrir aðdáendur.