Skoðun

Líf eftir WOW

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
WOW air fór í gjaldþrot í gær. Niðurstaðan verður að teljast nokkuð fyrirsjáanleg miðað við vendingar síðustu vikna. Auðvitað var vitað að við ramman reip væri að draga. Jafnvel þótt skuldabréfaeigendur hafi breytt kröfum sínum í hlutafé, lá fyrir að nýtt fé þyrfti til að tryggja framtíð félagsins.

Ólíklegt var að einhver fengist til að taka þá áhættu á þeim skamma tíma sem var til stefnu. Bandaríski sjóðurinn Indigo var sá eini sem virtist hafa haft tíma til að skoða bókhald WOW, og því í aðstöðu til að bregðast hratt við.

Þegar ljóst var að Indigo væri ekki lengur við borðið, vísuðu sólarmerkin öll í sömu átt. Nú berast fregnir af því að flugvélaleigusalar WOW hafi stöðvað starfsemina að endingu. Varla er hægt að álasa þeim fyrir það, enda vanskil félagsins mikil og saga þeirra orðin nokkuð löng. Hins vegar verður að segjast að stjórnvöld koma ekki sérlega vel út. Svo virðist sem enginn hafi viljað taka ábyrgð á málinu sem þó snerti á ráðherrum fjármála, ferðamála og samgöngumála.

Sama er að segja um Samgöngustofu sem leyfði WOW að halda flugrekstrarleyfi þótt allar vísbendingar væru um að félagið uppfyllti ekki lengur skilyrði. Í marga mánuði hefur því verið haldið fram að stjórnvöld séu tilbúin með viðbragðsáætlun ef allt færi á versta veg hjá WOW air. Fyrstu viðbrögð eftir tíðindin sem vöktu okkur í gærmorgun voru þau að áætlunin hefði verið virkjuð, og að nánari upplýsingar kæmu síðar. Svo virðist sem áætlunin felist einkum í því að koma strandaglópum á leiðarenda.

Miðað við tilkynninguna á vef WOW virðast stjórnvöld ekki einu sinni hafa haft samráð við flugfélagið um hvernig tilkynning um rekstrarlok skyldi líta út. Eðlilegt er að spyrja í hverju vöktunin og vinnan alla þessa mánuði hafi falist. En hvað sem þeim vangaveltum líður er staðreyndin sú að WOW air hefur flogið sitt síðasta flug. Hjá félaginu störfuðu ríflega þúsund manns sem nú eru í erfiðri stöðu.

Til lengri tíma ætti þó hagkerfið að ná jafnvægi. Ísland er enn áhugaverður áfangastaður fyrir ferðafólk, og reynslan, til dæmis af gjaldþroti Air Berlin, sýnir að markaðurinn mun sjá um að anna eftirspurn eftir flugferðum til landsins. Gleymum því ekki að Ísland er um margt í öfundsverðri stöðu. Ríkissjóður er hóflega skuldsettur og hér eru undirstöður allar góðar. Vonandi taka deiluaðilar á vinnumarkaði nú ábyrga afstöðu í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin, og ná saman skjótt og örugglega. Þá væru tvö stærstu óvissumálin í íslensku efnahagslífi frá, og hægt að líta fram á veginn. Það er nefnilega líf eftir WOW.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×