Skoðun

Baráttan um streymið

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Bandaríska stórfyrirtækinu Apple tókst að valda uppnámi í að minnsta kosti þremur rótgrónum atvinnugreinum í einu vetfangi á mánudag þegar fyrirtækið kynnti ýmsar nýjungar. Forsvarsmenn í banka-, sjónvarps- og fjölmiðlageiranum víða um heim hafa sennilega hugsað um fátt annað síðan.

Á kynningunni var Apple-kreditkortið kynnt. Kortinu fylgir enginn falinn kostnaður og engin árgjöld. Þótt ekki verði hægt að nota kortið nema í Bandaríkjunum, að minnsta kosti fyrst um sinn, hljóta forsvarsmenn hefðbundinna banka og greiðslukortafyrirtækja að hugsa sinn gang. Þjónustugjöld sumra korta með fríðindum geta numið tugum þúsunda á ári og verið allmikill hluti tekna fyrirtækja í geiranum.

Þá fjallaði Apple um nýja fréttaveitu fyrirtækisins, Apple News+, þar sem meira en 300 dagblöð og tímarit verða aðgengileg notendum. Fréttaveitunni hefur verið lýst sem „Netflix fjölmiðlanna“. Útgefendur fjölmiðla standa frammi fyrir erfiðu vali um hvort þeir vilja miðla sína inn í fréttaveitu Apple, en hlutur fjölmiðlanna af tekjum áskriftarinnar er sagður rýr. Stórblöð á borð við New York Times og Washington Post hafa sagst ekki vilja taka þátt. The Wall Street Journal og Los Angeles Times líta hins vegar svo á að þarna sé tækifæri til að fjölga lesendum, þótt hagnaðurinn renni að stórum hluta til Apple.

Síðast en ekki síst kynnti forstjórinn, Tim Cook, ásamt Hollywood-stjörnunum Steven Spielberg og Opruh, nýtt Apple TV+, þar sem þættir verða aðgengilegir frá hinum ýmsu streymisveitum á borð við Hulu og HBO. Þá boðar Apple eigin framleiðslu á efni.

Margir eru um hituna í efnisveitum. Disney hefur boðað stærstu efnisveitu heims, Disney +, síðar á árinu. Í Bandaríkjunum er Warner Bros í svipuðum hugleiðingum. Í Bretlandi eru BBC og ITV á sömu slóðum. Fyrir á markaði eru risar á borð við Amazon, Netflix og Hulu.

Disney, stærsti einstaki eigandi sjónvarpsefnis og kvikmynda í heiminum, hefur þegar tekið til við að þynna út sitt efni í banka Netflix, sem hefur haft sýningarrétt á miklu efni úr smiðju fyrirtækisins.

Erfitt er að sjá fyrir þróunina til lengri tíma. Augljóslega er dýrt að vera áskrifandi að öllum þessum efnisveitum. Ef til vill mun áskrift hefðbundins heimilis í framtíðinni ekki vera jafn ólík áskrift kynslóðarinnar á undan og menn hafa haldið – heldur verði einhvers konar pakki efnisveitna tekinn saman. Ekki svo ólíkt áskrift að sjónvarpsstöðvum þar sem flakkað var á milli stöðva, þótt tími línulegs sjónvarpsáhorfs sé nú liðinn.

Einhverjir munu verða undir. Þeir sem fyrir eru munu þurfa að laga sig að breyttum aðstæðum. Netflix hefur undanfarið haft markaðsráðandi stöðu og eytt háum fjárhæðum í vandað sjónvarpsefni. Spurningin er hvort samkeppnin verður veitunni byr undir báða vængi eða til þess að hún þurfi að draga saman seglin.

Eitt er ljóst. Baráttan um streymið er hafin fyrir alvöru.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×