Samkvæmt frétt Kjarnans um málið funda forsvarsmenn félaganna nú með stjórnvöldum þar sem farið er yfir stöðu mála og næstu skref. Upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar kvaðst þó ekki geta veitt upplýsingar um málið þegar fréttastofa leitaði eftir því.
Hér má lesa stutta tilkynningu Icelandair:
„Icelandair Group hefur ákveðið að ekki muni verða af hugsanlegri aðkomu félagsins að rekstri flugfélagsins WOW air sem tilkynnt var um hinn 20. mars sl. Þar með hefur viðræðum á milli aðila verið slitið.“
Hvorki hefur náðst í Skúla Mogensen, forstjóra og eina eiganda WOW, né Svanhvíti Friðriksdóttur, upplýsingafulltrúa félagsins, vegna málsins.
Viðræðurnar strönduðu á fjárhagsstöðu WOW
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að rekstur og fjárhagsstaða WOW air væri með þeim hætti að forsvarmenn Icelandair treystu sér ekki til að halda áfram með málið.„Eftir mikla vinnu og skoðun undanfarna daga, þá er niðurstaða okkar sú að rekstur og fjárhagsstaða WOW air er með þeim hætti að við treystum okkur ekki til þess að halda áfram með málið og ákváðum að slíta viðræðunum,“ segir Bogi.

Hann segir starfsmenn Icelandair telja að hægt verði að leysa þann vanda sem skapast hefur með kyrrsetningu Boeing 737 MAX flugvélanna með öðrum hætti en að notast við flugvélar sem WOW air er með á leigu.
„Það er spurning hvenær MAX-in kemur í rekstur. Ef það verður frekari töf á því getum við leigt aðrar vélar tímabundið. Við erum að skoða ýmsar lausnir hvað það varðar.“
Sama hvað gerist, segir Bogi framtíðina bjarta
Bogi segir að stjórnvöld hafi verið upplýst um gang mála í viðræðunum. Aðspurður um hvað gerist nú segir hann: „Við þurfum að einbeita okkur að okkar rekstri og styrkja hann.“Hann segist vonast til þess að rekstur WOW air gangi áfram.
„Það er ekki gott fyrir íslenskt þjóðfélag ef stórt félag fer. WOW air er mikilvægt fyrir íslenska ferðaþjónustu en það er ekki í okkar höndum hvað gerist þar.“
Varðandi það hvort Icelandair geti fyllt upp í það tómarúm sem við brotthvarf WOW air af flugmarkaði bendir Bogi á að í sumar verði 26 flugfélög að fljúga til Íslands. Um 15 flugfélög fljúgi allan ársins hring og tíu flugfélög fljúgi til Íslands í dag.
„Við getum bætt í ef á þarf að halda og við sjáum tækifæri til þess, og önnur flugfélög líka. Þannig að sama hvað gerist úr þessu, þá er framtíð íslenskrar ferðaþjónustu björt og langtímahorfurnar mjög góðar.“
Hvarf WOW af flugmarkaði gæti haft víðtækar afleiðingar
Nýleg skýrsla um áhrif brottfalls WOW af flugmarkaði, sem félagið lét ráðgjafafyrirtækið Reykjavík Economics vinna, leiðir líkur að því að hverfi félagið af markaði gæti það leitt til samdráttar á landsframleiðslu um allt að 2,7 prósent. Þúsundir myndu missa vinnuna og gengi krónunnar gæti veikst í kjölfarið.Síðasta fimmtudag var tilkynnt um viðræðuslit milli WOW og bandaríska fjárfestingasjóðsins Indigo Partners um mögulega fjárfestingu sjóðsins í félaginu. Á sama tíma var tilkynnt að Icelandair Group og WOW hefðu hafið viðræður sín á milli að nýju en félögin höfðu áður átt í viðræðum um mögulega aðkomu Icelandair að rekstri WOW í nóvember síðastliðnum.
Fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, Jón Karl Ólafsson, hafði áður sagt að hann hefði litla sem enga trú á því að Icelandair kæmi til með að fjárfesta í WOW þar sem Airbus vélar síðarnefnda félagsins hentuðu einfaldlega ekki rekstri Icelandair.