Versta byrjun liðs í undanúrslitum í þrettán ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. apríl 2019 15:00 Brandon Rozzell var rosalegur í gær, skoraði 28 stig og hitti úr öllum fimm þriggja stiga skotum sínum. Vísir/Vilhelm
Stjörnumenn léku sér að ÍR-ingum í fyrsta leik undanúrslita Domino´s deildar karla í körfubolta í gær. ÍR var reyndar fjórum stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 20-16, en Stjarnan vann á endanum 33 stiga sigur, 96-63. Leikur ÍR-ingar hrundi í öðrum leikhluta og Stjörnumenn unnu síðan þriðja leikhlutann með tuttugu stigum (33-13). Þetta er versta byrjun liðs í undanúrslitum úrslitakeppni karla í þrettán ár síðan síðan í úrslitakeppninni 2006. Þetta er enn fremur fjórði stærsti sigurinn í upphafsleik undanúrslita í 35 ára sögu úrslitakeppninnar. Það þarf að fara langt aftur til að finna annan eins rassskell í fyrsta leik hjá tveimur af fjórum bestu liðum landsins. Njarðvíkingar unnu KR-inga með 36 stigum í fyrsta leik undanúrslitanna 2006 en það er næststærsti sigurinn í fyrsta leik í undanúrslitunum. Keflvíkingar eiga áfram metið en þeir unnu 44 stiga sigur á nágrönnum sínum í Njarðvík í fyrsta leik undanúrslitanna vorið 2003. Á síðustu árum var stærsti skellurinn 30 stiga tap Hauka á Sauðárkróki í undanúrslitum 2015 en Tindastóll vann þann leik 94-64.Stærstu sigrar í fyrsta leik í undanúrslitum í sögu úrslitakeppni karla: 44 stig - Keflavík vann Njarðvík 108-64 (2003) 36 stig - Njarðvík vann KR 101-65 (2006) 34 stig - Keflavík vann Skallagrím 105-71 (1993)33 stig - Stjarnan vann ÍR 96-63 (2019) 30 stig - Tindastóll vann Hauka 94-64 (2015) 28 stig - KR vann Keflavík 102-74 (2009) 28 stig - Grindavík vann Snæfell 110-82 (2009) 22 stig - Tindastóll vann Keflavík 109-87 (2001)
Dominos-deild karla Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Fleiri fréttir „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 95-80 | Yfirburðir í fráköstum og Njarðvíkingar leiða „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Martröðin fullkomnuð fyrir Mavericks Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers KR einum sigri frá því að komast upp í Bónus-deildina Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Haiden Palmer kemur aftur til Íslands en nú sem þjálfari Garðabæjargrýla Grindvíkinga hefur stækkað og stækkað í 86 mánuði Lagði egóið til hliðar fyrir liðið „Ég er alltaf stressuð“ Dallas og Miami enn á lífi í umspili NBA „Skitum á okkur í þriðja leikhluta“ „Fáránlega erfið sería“ Háspenna í umspili um sæti í Bónus deildinni Uppgjörið: Haukar - Grindavík 79-64 | Haukar númeri of stórar Svona eru undanúrslitin: Ballið hefst á tvíhöfða annan í páskum Versta úrslitakeppnin í sögu Reykjanesbæjarliðanna Butler og Curry í stuði þegar Golden State komst í úrslitakeppnina Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug „Holan var of djúp“ „Vissum alveg að við værum í góðum málum“ „Við erum að byggja upp ákveðinn kúltúr“ Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 104-89 | Álftnesingar í undanúrslit í fyrsta sinn Uppgjörið: ÍR - Stjarnan 74-80 | Garðbæingar í undanúrslit Sjá meira