

Af dýrum, hundum og fuglum
Afi minn var skógarvörður og á hverju ári dvöldum við hjá honum í húsinu úti í skógi. Þarna lærðum við mikið um náttúruna og villtu dýrin og að allt sem er lifandi hefur sinn tilgang. Hér á Íslandi er fána villtra dýra ekki eins fjölbreytt. Það eru fyrst og fremst fuglar sem dýravinurinn heillast af. Hér eru stórir stofnar af sumum tegundum sem eru annars sjaldgæfar á heimsvísu og við berum ábyrgð á. Flest allir fuglar eru farfuglar og leggja margir þeirra mikið á sig til að komast í varpstöðvar hingað. Sumir eru einungis nokkur grömm á þyngd. Ótrúlegt er að krían og óðinshaninn til dæmis fljúga næstum því um hálfan hnöttinn tvisvar á ári. Jafn ótrúlegt þykir einnig að pínulitlir fuglar eins og auðnutittlingur, músarindill og glókollur geti lifað af veturinn hér á landi.
Nú er þessi dásamlegi tími genginn í garð þegar farfuglar streyma til landsins og fylla loftið með sínum röddum. Ég held að flestir gleðjast yfir því að loksins heyrist í lóu, hrossagaukurinn hnitar sína hringi og spóinn kemur með sín sérkennilegu hljóð. En allir farfuglar þurfa næði til að afla sér fæðu og orku þegar þeir koma úr löngu og ströngu ferðalagi. Stutt er sumarið og ekki er of mikill tími til að ala upp ungana sína þannig að þeir munu hafa burði til þess að leggja langa farflugið á sig að hausti.
Margt fólk sem stundar útivist á hunda. Hundar eru bestu félagarnir til að drífa menn daglega út að ganga. Læknar hafa jafnvel skrifað upp á hund í staðinn fyrir lyf við ofþyngd eða þunglyndi. Hundar eru yndislegar skepnur sem gefa okkur alla ást sína og vilja vera með okkur, alveg sama hvað gerist. Ég elska hunda og þeir finna það, á gönguferðunum mínum vilja þeir yfirleitt koma til mín og knúsa. En hundar eru misvel uppaldir og sumir gegna illa. Menn sem eiga hunda sem gegna vel þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að þeirra hvutti vaði upp á fugla í varpi. En aðrir ættu að hafa hundana sína í bandi á varptíma fugla. Það er ekki vegna þess að hundar drepa fugla. Það er vegna þess að truflun á varptíma gæti þýtt að afræningjar komast í færi og færri ungar komist á legg.
Gott hundafólk, hafið þið hundana í bandi á varptíma fugla á þeim stöðum sem vitað er að margir fuglar hafa hreiðrið sitt.
Úrsúla Jünemann kennari á eftirlaunum og náttúruvinur
Skoðun

Fyrsta skrefið í átt að betri Menntasjóði
Logi Einarsson skrifar

Læknafélagið virðir ekki afstöðu félagsmanna sinna
Bjarni Jónsson skrifar

Göngum í takt
skrifar

Hverju lofar þú?
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skrifar

Það er vá fyrir dyrum - Börnin okkar
Svava Þ. Hjaltalín skrifar

Hvert er eðli innflutningtolla? – Hvað er Trump eiginlega að gera? - Hverjir munu líða mest?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar - Babýlonherleiðingin og örlög smáþjóða í átökum heimsvelda
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Fjölgun hjartasjúkdóma og aukið álag á spítalana í boði Carnivore bylgjunnar?
Guðrún Nanna Egilsdóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar

Allt að vinna, engu að tapa!
Helga Rakel Rafnsdóttir,Margrét M. Norðdahl skrifar

Fiskurinn í blokkunum
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar

Snýst núverandi staðsetning Reykjavíkurflugvallar um öryggi… eða mögulega eitthvað annað
Daði Rafnsson ,Kristján Vigfússon ,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar

Þegar vald óttast þekkingu
Halla Sigríður Ragnarsdóttir skrifar

Með hjúkkuna upp í rúm og lækninn í vasanum
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hverjir eiga Ísland?
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Komum náminu á Höfn í höfn
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Betra líf eftir greiningu krabbameins, tímamótarannsókn sem vísar veginn
Sigríður Gunnarsdóttir skrifar

Veiðigjöld vs afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Tollar – Fyrir hverja?
Valdimar Birgisson skrifar

Þau eru fá en þörfin er stór
Sif Huld Albertsdóttir skrifar

Samvinnufélög, valkostur í atvinnurekstri
Elín H. Jónsdóttir,Guðrún Johnsen skrifar

Leiðin til helvítis
Jón Pétur Zimsen skrifar

Eitruð kvenmennska
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Hinn nýi íslenski aðall
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Samningur HSÍ við Rapyd – Opið bréf til frambjóðenda í formannskjöri
Hópur stuðningsmanna Íslands í handbolta skrifar

Gjaldskrár munu ekki virka til að koma aftur framleiðslu af stað
Sæþór Randalsson skrifar

Mannúð og samvinna á tímum sögulegra þjáninga
Sólrún María Ólafsdóttir skrifar

Hvernig getum við notað nýjar ráðleggingar um mataræði?
Óla Kallý Magnúsdóttir,Jóhanna E. Torfadóttir skrifar

Þegar rykið hefur sest
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Búum til réttlátt lífeyriskerfi
Hrafn Magnússon skrifar

Á undan jarðýtu komi fornleifafræðingur…
Stefán Pálsson skrifar