Musk þarf að mæta fyrir dóm vegna ærumeiðinga

Musk, reyndi að komast hjá ákærunni fyrir meiðyrði, sem kafarinn Vernon Unsworth lagði fram, en var gert skylt að mæta fyrir dóm þann 22. október af alríkisdómara.
Unsworth segir Musk hafa borið hann rógi og sagði ásakanir Musk „ólöglegar, ósannanlegar og forkastanlegar,“ eins og kemur fram í gögnum frá dómsgögnum í málinu.
Musk kallaði Unsworth barnaníðing í færslu á Twitter í júlí á síðasta ári eftir að Unsworth sagði tilraunir Musk til að hjálpa til við björgun Taílenska fótboltaliðsins vera markaðsbrellu.
Unsworth var meðlimur í teymi kafara sem bjargaði öllum drengjunum tólf og þjálfaranum þeirra þegar þeir festust í helli í tvær vikur vegna rísandi vatnshæðar í Taílensku hellunum.
Musk og verkfræðingar frá SpaceX geimflaugafyrirtækinu hans höfðu smíðað lítinn kafbát og flutt til Taílands til að hjálpa til við björgun drengjanna.
Þegar hann sóttist eftir að málinu yrði vísað frá sögðu lögmenn Musk að athugasemdir hans við kafarann hafi verið ýktar og byggðar á ímyndun og þær væru stjórnarskrárvarðar undir fyrsta ákvæði stjórnarskrár Bandaríkjanna.
Stephen Wilson, umdæmisdómari, sagði aðstæðurnar þegar ummælin komu fram ekki hafa verið hverfular þannig að fyrsta stjórnarskrárákvæði ætti ekki við í þessu tilfelli þar sem ummælin væru meira en bara skoðanir.
Tengdar fréttir

Musk ýmist hylltur eða gagnrýndur harðlega fyrir að vilja aðstoða
Bandaríski tæknifrumkvöðullinn Elon Musk er ýmist hylltur eða gagnrýndur harðlega fyrir tilraunir hans og samstarfsfélaga til þess að finna lausn til þess að koma knattspyrnudrengjunum tólf og þjálfara þeirra út úr hellinum í Taílandi.

Sérútbúið hylki á leið frá Elon Musk til Taílands
Elon Musk, eigandi SpaceX og Tesla, hefur sent lítinn kafbát til Taílands sem mögulegt er að verði notaðir í björgunaraðgerðum vegna þeirra níu sem eftir sitja í hellinum í Chiang Rai. CNN greinir frá.

Kafarinn lögsækir Musk vegna barnaníðsummæla
Unsworth var meðal þeirra sem stóðu að björgun fótboltastrákanna 12 og þjálfara þeirra úr Chiang Rai hellunum í Taílandi í sumar. Kafarinn hafði gagnrýnt áform Musk um að senda smákafbát á staðinn í þeim tilgangi að aðstoða við björgun drengjanna.

Elon Musk býður fram aðstoð við björgun fótboltastrákanna
Fulltrúar á vegum Elon Musk eru í viðræðum við yfirvöld í Taílandi um hvernig fyrirtæki í eigu frumkvöðulsins geti aðstoðað við björgun fótboltastrákanna sem dvalið hafa í helli í tólf daga.

Musk heldur barnaníðsásökunum á hendur kafaranum til streitu
Elon Musk, stofnandi Tesla og SpaceX, virðist enn vera á þeirri skoðun að kafarinn Vern Unsworth, einn af þeim sem kom að björgunaraðgerðum í Taílandi í sumar þegar fótboltalið festist inn í helli, sé barnaníðingur.

Heimsbyggðin fagnar því að drengirnir hafi komist út
Fregnir af því að fótboltadrengjunum tólf og þjálfara þeirra hafi öllum verið bjargað hafa farið eins og eldur um sinu um heimsbyggðina. Þjóðarleiðtogar og knattspyrnulið víða um heim hafa lýst yfir ánægju sinni með það að allir séu heilir á húfi.