ÍA áfram eftir endurkomusigur Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 31. maí 2019 21:20 ÍA verður í pottinum í 8-liða úrslitunum mynd/facebooksíða ía
ÍA tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna með endurkomusigri á Þrótti á Norðurálsvellinum. Þór/KA valtaði yfir Völsung á Akureyri. Gestirnir í Þrótti byrjuðu af krafti á Akranesi og skoraði Lauren Wade tvö mörk á fyrsta korteri leiksins. Bæði lið eru taplaus í Inkassodeild kvenna í sumar. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir minnkaði muninn fyrir ÍA strax á 24. mínútu og var staðan 2-1 fyrir Þrótt í hálfleik. Fríða Halldórsdóttir jafnaði metin á 55. mínútu og það var svo Eva María Jónsdóttir sem tryggði ÍA sigurinn með marki á 75. mínútu, lokatölur 3-2. Það var ljóst að 2. deildarlið Völsungs ætti á brattann að sækja á móti sterku Pepsi Max deildarliði Þórs/KA og fór svo að Þór/KA vann stórsigur. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir kom heimakonum á bragðið á 19. mínútu. Andrea Mist Pálsdóttir bætti við þremur mínútum seinna og Þórdís Hrönn bætti sínu öðru marki við fyrir hálfleik. Þór/KA skoraði þrjú mörk á sex mínútna kafla í upphafi seinni hálfleiks og drap þar með þær vonarglætur sem mögulega lifðu í Völsungshjörtum. Hulda Björg Hannesdóttir rak svo síðasta naglann í kistuna á 84. mínútu, leiknum lauk með 7-0 stórsigri Þórs/KA. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Mjólkurbikarinn Mest lesið Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Fótbolti Uppgjörið: Njarðvík 84-75 Stjarnan | Njarðvík tekur foyrsuna í kaflaskiptum leik Körfubolti „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Enski boltinn „Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“ Körfubolti „Þetta var alveg orðið smá stressandi“ Sport Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu Fótbolti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Enski boltinn „Verðum að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum“ Körfubolti Fleiri fréttir Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ „Stærsta í þessu er ef Rúnar Már nær að spila meira“ Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni „Gerðum gott úr þessu“ Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1 | Breiðablik er meistari meistaranna Herra Víkingur kvaddur: „Rosalega gott tækifæri til að hætta“ Skelfileg meiðsli Stefáns Árna: „Fóturinn var í mjög ljótri stöðu“ Frumraun Gylfa í beinni í kvöld „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari „Mjög krefjandi tímabil framundan“ „Lærir með hverju árinu hvað maður á að hlusta á og hvað ekki“ Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Nýi markvörður KA kom snemma inn af bekknum í fyrsta leik Ísabella Sara sögð á leið til Rosengård Besta auglýsing Aftureldingar: „Þetta er enginn helvítis Pizzabær“ „Veturinn eins og best verður á kosið“ Sjá meira