Flestar vikur á þessu tímabili hafa jarðskjálftar verið færri en 10 sem er mun minni virkni en misserin þar á undan.
Jarðskjálftar stærri en 2.0 hafa ekki orðið í Öræfajökli frá því í febrúar og frá svipuðum tíma hefur losuð orka í skjálftum lítið vaxið.

Á undanförnum mánuðum hefur rennsli í ám umhverfis Öræfajökul verið í góðu samræmi við úrkomu og lofthita, ekki hefur orðið vart við jarðhitavatn í Kotá, Kvíá og Virkisá. Rafleiðni í þessum ám hefur einnig verið innan eðlilegra marka.
Þegar órói hófst í Öræfajökli haustið 2017 var net vöktunarmæla á svæðinu þétt til muna. Jarðskjálftamælum og GPS tækjum sem nema jarðskorpuhreyfingar var fjölgað og rennslis- og leiðnimælum í ám var komið upp. Allir þessir mælar streyma gögnum til Veðurstofu Íslands þar sem náttúruvársérfræðingar Veðurstofunnar fylgjast með gögnunum allan sólarhringinn. Bætt vöktunarkerfi eykur líkurnar á því að hægt sé að vara við yfirvofandi eldgosi í tíma og rekstur slíks kerfis í byggð sem stendur svo nærri eldfjalli er lífsnauðsyn.
Óvissustigi vegna aukinnar virkni í Öræfajökli var lýst yfir þann 17. nóvember 2017 vegna aukinnar jarðskjálftavirkni í fjallinu, flóða í Kvíá og brennisteinslyktar frá henni og myndunar sigketils í ísnum í öskju á toppi Öræfajökuls.