Rafíþróttir

Bein útsending: Úrslit Lenovodeildarinnar í Counter Strike

Andri Eysteinsson skrifar
Hafið gegn Fylki í Háskólabíói.
Hafið gegn Fylki í Háskólabíói. Rafíþróttasamband Íslands
Þá er loks komið að því, eftir margra vikna Counter Strike spilun hafa tvö lið komist í úrslitaviðureignina sjálfa í Lenovo deildinni.

Í kvöld klukkan 18:30 hefst viðureign Hafsins og Fylkis beint frá Háskólabíói. Leikið er eftir „best of 3“ fyrirkomulagi og þurfa liðin því að vinna tvo leiki til þess að tryggja sér titilinn.

Í gær öttu FH og Dusty kappi í úrslitum í League of Legends hluta Lenovodeildarinnar og má sjá brot úr leiknum hér að neðan, beina útsendingu frá kvöldinu í kvöld má finna neðst í fréttinni.

Búast má við mikilli spennu enda um tvö topp Counter Strike lið að etja hér kappi. Hægt verður að fylgjast með úrslitaviðureigninni í beinni hér að neðan. Einnig er hægt að skella sér í Háskólabíó og upplifa stemmninguna til fulls.

Í deildarkeppninni sigraði Hafið allar tólf viðureignir sínar og endaði því á toppi deildarinnar en ljóst er að spilararnir í Fylki eiga harma hefna og munu því ekkert gefa eftir í baráttunni og hafa einsett sér að koma titlinum heim í Árbæinn.

Til þess að komast í úrslitaviðureignina bar Hafið sigurorð af KR í æsispennandi viðureign en Fylkismenn unnu viðureign sína gegn Tropadeleet.

Watch live video from Rafithrottir on www.twitch.tv





×