Þrír Íslendingar á skotskónum í Noregi Anton Ingi Leifsson skrifar 30. júní 2019 17:51 vísir/getty
Íslensku knattspyrnumennirnir voru á skotskónum í norska fótboltanum í dag en þrír náðu að skora fyrir sín lið í dag og einn lagði upp mark.Samúel Kári Friðjónsson skoraði mark Viking er liðið gerði 1-1 jafntefli við Mjøndalen. Samúel kom Viking yfir í leiknum en Viking er í sjötta sætinu. Mjøndalen er í því þrettánda.Matthías Vilhjálmsson lagði upp eitt mark er Vålerenga vann 4-1 sigur á Haugesund. Matthías spilaði allan leikinn fyrir Vålerenga en þeir eru eftir sigurinn í fjórða sæti deildarinnar.Arnór Smárason spilaði í klukkustund er Lillestrøm rúllaði yfir Tromsø, 4-0, í sömu deild. Lillestrøm er í tíunda sæti deildarinnar með fimmtán stig. Í norsku B-deildinni skoraði Hólmbert Aron Friðjónsson fyrsta mark Álasundar er liðið vann 3-1 sigur á Sandnes Ulf. Markið skoraði Hólmbert á tíundu mínútu en tveimur mínútum síðar fór hann meiddur útaf.Aron Elís Þrándarson og Daníel Leó Grétarsson spiluðu allan leikinn fyrir Álasund sem er á toppi B-deildarinnar með 32 stig.Viðar Ari Jónsson og félagar í Sandefjord eru í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Álasund, eftir 2-0 sigur á Jerv. Viðar spilaði allan leikinn en Emil Pálsson er á meiðslalistanum.Aron Sigurðarson skoraði tvö mörk og lagði upp eitt er Start vann 3-1 sigur á Tromsdalen. Aron, sem hefur verið funheitur á leiktíðinni, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Hann spilaði allan leikinn fyrir Start en Kristján Flóki Finnbogason var tekinn af velli á 56. mínútu. Start er í sjötta sæti deildarinnar með 22 stig en deildin er nú á leið í sumarfrí.
Norski boltinn Mest lesið Staðfestir brottför frá Liverpool Enski boltinn Íslensk hjón fóru holu í höggi á sama hring Golf Freyr á toppnum: „Ég elska Bergen“ Fótbolti Kristín Birna í stað Vésteins sem verður ráðgjafi Sport Allt undir í oddaleik: Sjaldan mætt liði á Íslandi með jafn mikil einstaklingsgæði Körfubolti „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Körfubolti „Þær eru stærri en við erum drullusterkar“ Körfubolti Þorleifur snýr heim í Breiðablik Íslenski boltinn Pirraður Hamilton biðst ekki afsökunar Formúla 1 Sjáðu Flóka færa Val fyrsta tapið, ÍA í stuði og hvernig Vestri fór á toppinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Amorim: Liðið ekki nógu gott til að vera í Meistaradeildinni Sjáðu Flóka færa Val fyrsta tapið, ÍA í stuði og hvernig Vestri fór á toppinn Wenger á móti umbuninni sem Man. Utd og Tottenham þrá Þorleifur snýr heim í Breiðablik Staðfestir brottför frá Liverpool Freyr á toppnum: „Ég elska Bergen“ Kane fékk loksins að syngja sigurlagið Uppgjör: FH - Valur 3-0| FH skellti Valsmönnum „Vantar hjarta og baráttu í mína menn“ „Náðum að nýta kröftuga byrjun með mörkum“ Lille bjargaði mikilvægu stigi Nik sendi Ástu skeyti: „Mikil eftirvænting fyrir þessari frumraun“ Hörður í hóp eftir tæplega tveggja ára meiðsli Uppgjörið: ÍA - KA 3-0 | Skagamenn risu upp og Viktor fann markaskóna Bayern varð sófameistari Logi skoraði í tapi en Stefán setti sigurmark Erfitt hjá Íslendingunum í Svíþjóð Uppgjörið: ÍBV - Vestri 0-2 | Vestramenn aftur á toppinn Vont tap hjá Alberti í Rómarborg Meistaraþynnka hjá Liverpool og Chelsea græddi mikilvæg stig Isak tryggði Skjórunum stig gegn Mávunum Sjö marka leikur í Lundúnum og enn eitt tap United Hamrarnir jöfnuðu gegn Spurs en biðin eftir sigri lengist enn Titilvonir Real Madrid lifa og El Clásico framundan Yngstur til að byrja leik fyrir United í ensku úrvalsdeildinni Leikmaður Palace vann tvær og hálfa milljón á skákmóti Sjáðu markaveislu Breiðabliks og FH og mörkin úr sögulegum sigri Fram Ætla að nýta reiðina í Meistaradeildinni Markmaðurinn á batavegi eftir harkalegt höfuðhögg Börsungar sneru við blaðinu gegn botnliðinu Sjá meira