Trygging sem Isavia hafði fyrir skuldum WOW air er farin af landi brott eftir að farþegaþota bandarísku flugvélaleigunnar ALC sem Isavia kyrrsetti fór frá Keflavíkurflugvelli í morgun. Upplýsingafulltrúi Isavia segir að málinu sé ekki lokið, það verði áfram rekið fyrir dómstólum.
TF-GPA var búin til brottfarar í morgun og laust eftir klukkan níu tók hún á loft frá Keflavíkurflugvelli. Þar með er síðasta vélin sem flaug í áætlunarflugi fyrir WOW air farin frá landinu en flugfélagið leigði hana frá bandaríska félaginu Air Lease Corporation (ALC).
Oddur Ástráðsson, lögmaður ALC, segir að vélin sé á leiðinni til Ljubljana í Slóveníu þar sem félagið er með viðhaldsaðstöðu fyrir þotur. Þar verði hún útbúin fyrir næsta verkefni. Vinda hafi þurft ofan af samningum um leigu vélarinnar vegna óvissu um hvenær hún yrði laus.
Fjallað hefur verið um málið á mismunandi dómstigum. Á miðvikudag úrskurðaði Héraðsdómur Reykjaness að kyrrsetningu vélarinnar skyldi aflétt og að ALC fengi hana aftur til umráða. Isavia vildi halda farþegaþotunni sem tryggingu fyrir tveggja milljarða króna skuld WOW air. Niðurstaðan varð að ALC greiddi 87 milljóna króna kröfu vegna vélarinnar.
Þrátt fyrir að vélin sé farin á Landsréttur eftir að fjalla um kæru Isavia vegna úrskurðar héraðsdóms í vikunni.
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að málinu sé ekki lokið, það verði áfram rekið fyrir dómstólum. Þar sem niðurstaða héraðsdóms hafi verið að ekki væri heimild til að fresta réttaráhrifum sé flugvél ALC farin af landi brott og þar með þær tryggingar sem í henni fólust.
