

Óskiljanlegt að Akureyringar séu innan við 50 þúsund
Skipulag segir hún er gott hjá bænum og embættismannakerfið sterkt, en ég undirritaður vil bæta við að alltaf er misjafn sauður í mörgu fé. En Akureyri er yndislega fallegur bær og veðursæld mikil og að auki nokkuð gott mannlíf. En hvað er þá að, að þessi fallegi bær geti ekki blómstrað og bætt við sig íbúum? Réttilega finnst bæjarstjóranum nýja einkennilegt að ekki skuli vera hér fleiri íbúar og eru það orð að sönnu, en lítum okkur nær.
Hér á undanförnum árum hefur verið um að ræða misviturt fólk í bæjarstjórn, sem hefur jafnvel verið staðið að því að þvarga um allt og ekki neitt og lítill afrakstur orðið af nytsamlegum aðgerðum. Hér hafa verið allt of margir kóngar misvitrir en ekki með neina kórónu á höfði og fá trúlega aldrei. Ég hef áður komið inn á og tekið dæmi um að einstaklingar hafa verið hraktir úr bænum fyrir tóma vitleysu og er skemmst að minnast hjóna, sem voru búin að búa í húsi sínu í um 30 ár og voru hrakin til Hafnarfjarðar.
Annað dæmi er um mann, sem var sóttur á sinn vinnustað, hrakinn úr starfi og fékk ekki vinnu eftir það og allt fyrir að túlka orð Biblíunnar í opinberum fjölmiðli. Þá er til dæmi um að íbúum hafi verið gróflega mismunað í sambandi við væntanlega byggingu á lóð sinni og allt að því lagðir í einelti. Grenndarkynning fór fram og innan við helmingur í nágrenninu var á móti byggingu á lóðinni og bar við bílastæðaleysi. Á annarri lóð var engin grenndarkynning enda ekki næg bílastæði og á þeirri þriðju ekkert gert í að 80% nærliggjandi íbúa mótmæltu fyrirhugaðri byggingu.
Og fleira kemur til gagnvart búsetu í bænum, sem ekki er fýsilegt fyrir aðkomufólk. Skólamál og þar með talin leikskólamál hafa verið í slíkum ólestri að skólastjóri einn hefur kvartað sáran og fólk hefur ekki fengið pláss fyrir börn sín og annað hvort farið í nærliggjandi sveitarfélög eða bara alls ekki flutt í bæinn.
Mikið hefur verið rætt og ritað um nauðsynlega stækkun á flugstöðinni hér ekki síst eftir að erlend ferðaskrifstofa kom á flugferðum hingað með ferðamenn helst tvisvar í viku. Athafnamaður hér í bæ hefur boðist til að reisa viðbygginguna og lána ríkinu, en lítið hefur frést af málinu nú um stundir. Hvað neyðarlegast er, er að NA-kjördæmi er með 10 þingmenn og þar af einn ráðherra, en hann er upptekinn við að skipuleggja innflutning á hráu kjöti þótt læknar og aðrir þeir, sem vit hafa á séu alfarið á móti því sökum alvarlegrar sýkingarhættu. Já, frú bæjarstjóri, Ásthildur Sturludóttir, það þarf víða að taka til hendinni svo að draumur þinn um 50 þúsund íbúa rætist.
Höfundur er fæddur og uppalinn Akureyringur.
Skoðun

Fullvalda utan sambandsríkja
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar - Salómonsdómur, lög og ólög
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Sjálfstæðir grunnskólar í hættu
Benedikt S. Benediktsson skrifar

Borgaralegur vígbúnaður
Dr. Bjarni Már Magnússon skrifar

Áskoranir og tækni í heilbrigðisþjónustu
Teitur Guðmundsson skrifar

Ósunginn óður til doktorsnema
Styrmir Hallsson skrifar

Frjáls umræða ekki lengur leyfð í USA – Skoðanafrelsi í hættu – Amerískt Gestapo í uppsiglingu?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Tannhjól í mulningsvél?
Arnar Þór Jónsson skrifar

Fækkum kennurum um 90%
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Uppsagnarbréf til góða fólksins
Daníel Freyr Jónsson skrifar

Kristni og íslam: Samfélag sem hvílir á skilningi
Skúli S. Ólafsson skrifar

Hugtakastríðið mikla
Sigmar Guðmundsson skrifar

Forsjárhyggja Sjálfstæðis- og Framsóknarfólks í Hafnarfirði í garð fólks með fötlun
Stefán Már Gunnlaugsson skrifar

Ekki er allt sem sýnist
Ólafur Helgi Marteinsson skrifar

Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum?
Jóna Sigríður Valbergsdóttir skrifar

Vilji til að rjúfa kyrrstöðu í húsnæðiskreppunni
Finnbjörn A. Hermannsson skrifar

Grænt ál frá Íslandi er mikilvægt fyrir sjálfstæða Evrópu
Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar

Þegar barn óttast önnur börn
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Falsfréttastjóri RÚV dýpkar holuna sína
Einar Steingrímsson skrifar

Ákall um breytingar
Gissur Freyr Gissurarson skrifar

Veit sem sagt Grímur betur?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hvernig talar maður við tölvur og hafa vélar rökhugsun?
Henning Arnór Úlfarsson skrifar

Laun kvenna og karla
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

Verkin sem ríkisstjórnin verður dæmd af
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Open Letter to new HÍ Rector re Disability Support
Hópur starfsfólks og nemenda við HÍ skrifar

Vanfjármögnun vísindanna
Magnús Hallsson,Styrmir Hallsson skrifar

Kárhóll og Kína: Þegar vísindi verða pólitísk tól
Davíð Michelsen skrifar

Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur – Hvernig manneskjur viljum við vera?
Hulda Steingrímsdóttir skrifar

Ríkisstjórn gegn fjölskyldusameiningum?
Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar

Lýðræðið deyr í myrkrinu
Heiðar Örn Sigurfinnsson skrifar