Sinisa Mihajlovic með hvítblæði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. júlí 2019 22:00 Mihajlovic tók við Bologna í byrjun þessa árs. Hann stýrði liðinu áður á árunum 2008-09. vísir/getty
Sinisa Mihajlovic, knattspyrnustjóri Bologna, hefur greinst með hvítblæði. Serbinn greindi frá þessu á blaðamannafundi í dag. Hann mun sinna þjálfun Bologna áfram, meðfram meðferð við veikindum. „Ég grét þegar ég fékk greininguna og er með tár í augunum núna en ég er ekki hræddur. Ég fer á sjúkrahús og get ekki beðið eftir því að hefja baráttuna. Ég sagði við leikmennina mína að ég myndi berjast til að vinna eins og ég hef kennt þeim að gera inni á vellinum,“ sagði Mihajlovic. „Ég mun vinna þessa baráttu, ekki nokkur spurning. Ég vil þakka öllum hjá Bologna fyrir að láta mér líða eins og ég sé einn af fjölskyldunni. Ég þarf hjálp hennar til að vinna þessa baráttu. En ég vil ekki að fólk gráti út af mér. Ég vil ekki vorkunn.“ Faðir Mihajlovic lést úr krabbameini og þess vegna fer hann reglulega í skoðun. Hann segir að það hjálpi hversu snemma hann greindist með meinið, áður en það náði að dreifa sér. Mihajlovic, sem er fimmtugur, tók við Bologna í ársbyrjun. Liðið vann níu af 17 leikjum undir hans stjórn á síðasta tímabili. Mihajlovic lék í 14 ár á Ítalíu og hefur síðan þjálfað nokkur þarlend félög eftir að skórnir fóru á hilluna 2006.
Ítalía Ítalski boltinn Serbía Mest lesið Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Fótbolti „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn „Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík 84-75 Stjarnan | Njarðvík tekur foyrsuna í kaflaskiptum leik Körfubolti Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Enski boltinn „Þetta var alveg orðið smá stressandi“ Sport Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu Fótbolti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Enski boltinn „Verðum að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum“ Körfubolti Fleiri fréttir „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu „Búin að taka mig inn í fjölskylduna“ Úthúðar þjálfaranum: Fékk betri æfingar í flóttamannabúðunum Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ „Stærsta í þessu er ef Rúnar Már nær að spila meira“ Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Sagði Fernandes að hann færi hvergi Lífvörðurinn bannaður: „Leyfið mér að hjálpa Messi“ Tárin streymdu hjá gömlu United-hetjunni „Ég veit bara að þetta er mjög vont“ 570 milljóna uppsafnað tap hjá Everton Tekjur Wrexham í hæstu hæðum Haaland væntanlega úr leik í deildinni Saka klár í slaginn á ný Fékk fjóra bakka af eggjum fyrir að vera maður leiksins Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Hvorki zombie-bit né tattú Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ Ekki þess virði að taka áhættu með Glódísi „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Glódís ekki með í landsleikjunum Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni Vill hópfjármögnun fyrir Antony Sjá meira