Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason var valin besta mynd kvikmyndahátíðarinnar í Motovun í Króatíu síðastliðið laugardagskvöld. Ingvar E. Sigurðsson, aðalleikari myndarinnar, tók við verðlaununum en það var einróma ákvörðun dómnefndar að velja myndina.
Dómnefndin sagði myndina takast á við þær tilfinningar sem fylgja ástvinamissa á óvenjulegan hátt. Ljúfsár túlkun á önugum og þunglyndum lögreglumanni snart dómnefndina djúpt sem var einróma í sinni niðurstöðu.
Þetta eru þriðju verðlaun myndarinnar en Ingvar vann Louis Roederer Rising Star verðlaunin í Cannes og einnig leikaraverðlaunin á Alþjóðlegu Transilvaníu Kvikmyndahátíðinni í Rúmeníu.
Kvikmyndin Hvítur Hvítur Dagur verður frumsýnd 6.september hér á landi.
Myndin segir frá Ingimundi lögreglustjóra sem hefur verið í starfsleyfi frá því að eiginkona hans lést óvænt af slysförum. Í sorginni einbeitir hann sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu, þar til athygli hans beinist að manni sem hann grunar að hafi átt í ástarsambandi við konu sína. Fljótlega breytist grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitnar einnig á þeim sem standa honum næst. Þetta er saga um sorg, hefnd og skilyrðislausa ást.
Hvítur hvítur dagur valin best í Króatíu
