Svo segir meðal annars í svarbréfi Sveins M. Sveinssonar kvikmyndagerðarmanns við kröfu lögmanna Ólafs Eggertssonar bónda á Þorvaldseyri. Ólafur krefst þess að sýningum á myndinni Eyjafjallajökull Erupts á veitingastaðnum Valhalla á Hvolsvelli verði hætt þegar í stað sem og sölu á eintökum hennar. Notkun á auðkenninu Eyjafjallajökull Erupst valdi honum og Eyrarbúi hf., fyrirtæki Ólafs, tjóni.
Ólafur telur sig höfund verksins
Vísir hefur fjallað um þessar sérstæðu deilur þeirra Ólafs og Sveins sem telur Ólaf hafa hlunnfarið sig um milljónir króna. Ólafur sýndi heimildarmyndina lengi vel í gosstofu sinni og er metið að um 500 þúsund manns hafi séð myndina sem gerir Eyjafjallajökull Erupts að aðsóknarmestu heimildarmynd Íslandssögunnar. Hagnaður af aðgöngumiðasölu er eftir því. Sveinn fékk hins vegar einungis hlut af sölu á disknum. Fljótlega eftir að Sveinn viðraði þau sjónarmið að honum bæri, sem höfundi myndarinnar, að fá eitthvað í sinn hlut í því sem snýr að sýningum myndarinnar hætti Ólafur sýningum á myndinni. Hvergi sér fyrir endann á deilum þessum. Sveinn gerði nýverið samkomulag við Úlfar Þór Gunnarsson á Gistiheimilinu á Hvolsvelli um sýningu á myndinni. Ólafur bóndi vill ekki sjá neitt slíkt.
Leikstjórn ekki að láta vita að eitthvað sé í vændum
Þarna stendur hnífurinn í kúnni. Sveini þykir það beinlínis hlálegt að Ólafur telji sig höfund myndarinnar. Í svarbréfinu leitast hann við að leiðrétta það sem hann segir meinlegan misskilning. Hann segir að í kreditlista myndarinnar og á kápu útgefins DVD disks komi afar skýrt fram að hann sé leikstjóri, höfundur handrits, kvikmyndatökumaður og klippari myndarinnar. Allt eru þetta hlutverk sem varin eru höfundalögum. Kvikmyndafyrirtæki hans Plús film framleiðir myndina.
Sveinn segir jafnframt í bréfinu að Ólafur sé meðframleiðandi en það þýði aðeins að hann hafi lagt fé til gerðar verksins auk Sveins.
„Eftir að Ólafur samþykkti í gosinu að leikstjóri myndarinnar og myndgerandinn fengi að fylgjast með framvindu mála og uppbyggingu á bænum í þeim tilgangi að gera heimildamynd féllst Ólafur á að láta Svein vita þegar eitthvað væri í vændum eins og hreinsun húsa, viðgerð á hitaveitu, sláttur og fleira, svo Sveinn gæti mætt og myndað, sem hann og gerði.“
Vanvirðing við vel heppnað verk
Sveinn segir að þegar uppgjör vegna sýninga Gistiheimilisins á myndinni liggi fyrir verði gert upp við Ólaf í samræmi við stöðu hans sem meðframleiðanda.
Það er í raun sorglegt að menn skuli leggjast svo lágt að vanvirða og gera lítið úr þessu vel heppnaða verki sem ferðaskrifstofur og hundruð þúsunda gesta kusu að berja augum og skapaði hundruð milljóna tekjur.“Sveinn vitnar að endingu í greinargerð Ólafs um málið, sem Vísir hefur sagt af, og honum er greinilega ofboðið þar sem segir: „Ég bað Svein bara að taka nokkur skot af búinu og setja saman 20 mínútna mynd til að sýna á Gestastofunni og hann fékk frítt fæði og uppihald á meðan tökum stóð.” segir Sveinn í bréfi sínu og lætur fylgja með upphrópunarmerki.
Ætla að láta reyna á lögbannskröfuna
Vísir ræddi við Úlfar Þór á Gistiheimilinu á Hvolsvelli og ljóst má vera að honum er um og ó, að vera sem milli steins og sleggju í þessum deilum. Hann segist ekki aðili málsins sem slíkur. Það sé milli Sveins og Ólafs.
Úlfar Þór segir að sýningar hafi ekki verið auglýstar og aðsóknin sé ekkert í líkingu við það sem var hjá Ólafi á sínum tíma. Enda hafi hann verið í sambandi við allar helstu ferðaskrifstofur landsins sem voru með ferðir um Suðurlandið. Og það taki tíma til að byggja upp vitund um að myndin sé enn á dagskrá. Þeir sem hafa komið eru mjög ánægðir. „Já, og ánægðir með að hún sé komin í sýningar aftur,“ segir Úlfar Þór en víst er að Ólafur bóndi er ekki eins ánægður með sýningarnar.
Ekki liggur nákvæmlega fyrir á þessu stigi hvar þetta sérstæða mál er á vegi statt en verði farið fram á lögbann við sýningum á myndinni heyrir það undir lögsögu Sýslumannsins á Suðurlandi. Samkvæmt upplýsingum þaðan hefur ekkert slíkt erindi borist embættinu enn sem komið er.