Elísabet Bretlandsdrottning hefur samþykkt beiðni Boris Johnson forsætisráðherra um að fresta þingfundum aðeins nokkrum dögum eftir að það kemur saman í september og þar til rétt rúmum tveimur vikum áður en Bretland gengur úr Evrópusambandinu í lok október. BBC greinir frá.
Boris Johnson segir að „mjög spennandi plön“ hans verði tilkynnt í stefnuræðu hans þann 14. október. Þann 31. október gengur Bretland að óbreyttu úr ESB.
Breytingin á þinginu hefur í för með sér að tími annarra þingmanna til að leggja fram lagafrumvörp í þeim tilgangi að koma í veg fyrir útgöngu Bretlands án samnings skerðist til muna.
Brexit-andstæðingar á þingi hafa sagt ákvörðunina árás á stjórnarskrána.
Bretadrottning samþykkti beiðni Boris

Tengdar fréttir

Fer fram á að þingfundum verði frestað: „Svartur blettur í sögu bresks lýðræðis“
Nýskipuð ríkisstjórn Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands mun fara fram á að Elísabet II. Englandsdrottning fresti þingfundum einungis örfáum dögum eftir þingið kemur saman að nýju eftir sumarfrí.