Michelle Ballarin, stjórnarformaður US Aerospace Associates, greindi í gær frá því að daglegt flug milli Keflavíkur og Washington hjá nýju félagi sem rekið verður undir merkjum WOW air muni hefjast í næsta mánuði.
Naumur tími er til stefnu, eða í mesta lagi átta vikur. Að sögn Guðjóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia er félagið ekki komið með fasta lendingartíma í Keflavík.
„Við hjá Isavia höfum ekki fengið formlegar upplýsingar um fyrirætlanir þessa nýja félags en við gleðjumst að sjálfsögðu yfir áformum félaga sem vilja koma til Keflavíkurflugvallar og fljúga til og frá vellinum.“

Þannig að þetta getur gerst með stuttum fyrirvara?
„Mögulega.“
Eftir blaðamannafund Ballarin í gær leitaði Túristi svara hjá Dulles-flugvelli í Washington, þaðan sem nýja félagið mun fljúga. Í svarinu segir að fulltrúar vallarins hafi átt einn fund með Ballerin og viðskiptafélögum varðandi flugþjónustu á flugvellinum. Sá hafi farið fram í síðasta mánuði en núna væru ekki nein flug á vegum nýja WOW air á dagskrá og að ekki væri hægt að tilkynna um nýjar flugleiðir.
Aðspurður um stöðu viðræðna um lendingartíma segir Páll Ágúst Ólafsson, lögamður Ballerin, að flug verði hafið í október og að unnið sé út frá tveimur dagsetningum fyrir jómfrúarflugið. Þær verði tilkynntar síðar. Hann bendir á að félagið US Aerospace Associates, og þar með nýja WOW, sé með höfuðstöðvar á Dulles-flugvelli, og að fyrirætlanir þeirra verði tilkynntar síðar í samstarfi við völlinn.