Basko á fimm 10-11 verslanir og rekur fjórtán verslanir undir merkjum Kvikk sem eru reknar við bensínstöðvar Skeljungs. Þá á Basko veitingastaðinn Bad Boys Burgers & Grill, verslunina Kvosina, auk matvöruverslana í Reykjanesbæ og á Akureyri. Undanskilið frá kaupunum er 50% eignarhlutur Basko í Eldum Rétt ehf. Basko er í meirihlutaeigu Horns III slhf., framtakssjóðs.
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs, ætti að þekkja vel til reksturs 10-11 sem hann stýrði um árabil. Árni Pétur var forstjóri 10-11 um tíma og síðar Basko. Árni Pétur var ráðinn forstjóri Skeljungs í ágúst.
Jón Ásgeir Jóhannesson settist á dögunum í stjórn Skeljungs sem fulltrúi 365 miðla, félags í eigu eiginkonu hans Ingibjargar Pálmadóttur. Félagið á 4,32 prósent í Skeljungi. Árni Pétur og Jón Ásgeir þekkjast vel frá fyrri tíð en Árni Pétur stýrði á sínum tíma matvælasviði Baugs Group þar sem Jón Ásgeir var forstjóri.

300 milljóna skuld
Skeljungur áformar að reka Basko sem dótturfélag. Kaupverðið sem Skeljungur greiðir fyrir allt hlutafé Basko nemur 30 milljónum króna en tekur um leið yfir skuldir upp á 300 milljónir króna. Forsendur kaupverðsins eru grundvallaðar á upplýsingum frá seljanda, meðal annars um áætlað uppgjör.„Ráðgert er að heildareignir Basko eftir fjárhagslega endurskipulagningu nemi 1.000-1.100 m.kr. Ráðgert er að vörusala yfirtekins rekstrar á yfirstandandi rekstarári nemi 5.000-5.200 m.kr. Áhrif kaupanna á EBITDA afkomu Skeljungs á þessu ári eru metin óveruleg og ekki til þess fallin að breyta áður útgefinni EBITDA spá. Eftir að rekstrarlegri endurskipulagningu á Basko lýkur er reiknað með að reksturinn muni hafa jákvæð áhrif á EBITDA afkomu Skeljungs sem nemur 100-200 m.kr. á ársgrundvelli,“ segir í tilkynningu frá Skeljungi.
„Við sjáum ýmis sóknarfæri með þessum kaupum. Árið 2014 samdi Skeljungur við Basko um rekstur verslana á helstu bensínstöðvum félagsins. Með kaupunum í dag tekur Skeljungur þann rekstur aftur til sín auk þess að eignast nokkrar aðrar matvöruverslanir. Með þessum kaupum erum við að bæta þjónustu við viðskiptavini Orkunnar með því að samtvinna rekstur Kvikk og Orkunnar með meira afgerandi hætti en áður. Basko hefur í gegnum góðar staðsetningar á verslunum sínum mjög sterka stöðu, til að mynda í sölu til ferðamanna. Innan félagsins er mikil þekking á rekstri þægindaverslana sem mun nýtast okkur. Með kaupum þessum stígur Skeljungur ákveðnara skref í smásölurekstri en áður hefur verið gert og horfir til enn frekari uppbyggingar á því sviði,“ segir Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs.