Laust eftir klukkan eitt í dag lenti F-35 orrustuþota ítalska flughersins á Akureyrarflugvelli af öryggisástæðum. Vélin var í æfingaflugi en loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins hefst í næstu viku.
TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út til að flytja liðsmenn ítalska flughersins norður til að kanna ástand vélarinnar, að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Með í för eru einnig tveir liðsmenn séraðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar og tveir frá sérsveit ríkislögreglustjóra til að annast öryggisgæslu umhverfis vélina. TF-GRO tekur á loft frá Reykjavíkurflugvelli um klukkan 14:00.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á Akureyri var lýst yfir hættustigi en því var aflýst nánast um hæl þegar flugmennirnir gátu lent vélinni.
