Skoðun

Tímamót hjá Fréttablaðinu

Jón Þórisson skrifar
Kynnt var í gær að breyting hefði orðið á eignarhaldi Torgs ehf., útgáfufélags Fréttablaðsins. Við þessa breytingu eignaðist félag í eigu Helga Magnússonar, ásamt öðrum, allt hlutafé í útgáfufélaginu, en félag Helga keypti helmingshlut í því í byrjun júní síðastliðins.

Viðskipti þessi marka tímamót í útgáfusögu Fréttablaðsins. Við þau hverfa frá stjórnarborðinu hluthafar sem hafa fylgt blaðinu frá árinu 2004 eða nánast alla útgáfusögu þess. Um er að ræða hjónin Ingibjörgu Stefaníu Pálmadóttur og eiginmann hennar, Jón Ásgeir Jóhannesson. Framlag þeirra til íslenskrar fjölmiðlasögu er mikið og merkilegt og verður án efa gerð skil með ítarlegum hætti í fyllingu tímans.

Fréttablaðið þakkar ánægjulegt og uppbyggilegt samstarf við þau og þeirra mikilvægu staðfestu og þrautseigju að halda úti öflugasta fjölmiðli landsins um 16 ára skeið. Um þessar mundir er Fréttablaðið prentað í tæplega 80.000 eintökum sex daga vikunnar og ber höfuð og herðar yfir keppinauta sína, hvort sem það varðar lestur, útbreiðslu eða upplag.

Samhliða þessum breytingum á eignarhaldi útgáfufélagsins er stefnt að því að miðlar Hringbrautar, sem staðið hefur að sjónvarpsútsendingum og netmiðli undir sama nafni, renni inn í Torg. Er sá samruni háður samþykki samkeppnisyfirvalda og umsögn fjölmiðlanefndar. Tilkynning þess efnis hefur verið send þessum stofnunum og bíður meðferðar þeirra. Ætlunin er að starfsemi Hringbrautar flytjist á Hafnartorg þar sem ritstjórn Fréttablaðsins og frettabladid.is er til húsa.

Þá var einnig tilkynnt um það í gær að Ólöf Skaftadóttir hafi látið af starfi ritstjóra að eigin ósk. Hún hefur starfað hjá fyrirtækinu síðastliðin sjö ár. Henni eru þökkuð vel unnin störf. Jón Þórisson lögfræðingur hefur verið ráðinn ritstjóri við hlið Davíðs Stefánssonar. Jón er jafnframt ábyrgðarmaður útgáfunnar. Jóhanna Helga Viðarsdóttir, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra hjá Torgi ehf., verður nú forstjóri og útgefandi fyrirtækisins.

Allt er þetta liður í að efla útgáfu Fréttablaðsins og tengdra miðla, ekki síst í þeirri varnarbaráttu sem háð er um sjálfstæða útgáfu fréttamiðla á Íslandi.

Stjórn Torgs hefur samþykkt ritstjórnarstefnu fyrir blaðið og miðla þess. Þar segir að stefna fjölmiðla félagsins sé að halda uppi borgaralegum viðhorfum, víðsýni og frjálslyndi. Frelsi sé gert hátt undir höfði og hag neytenda haldið á lofti. Stjórnvöldum á hverjum tíma sé veitt aðhald á öllum sviðum og sama gildi um dómstóla. Fréttablaðið og miðlar þess aðhyllist alþjóðlegt samstarf Íslendinga á breiðum vettvangi og horft sé til þess að dýpka slíkt samstarf til framtíðar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×