Skoðun

Búið spil

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Stríðið gegn fíkniefnum er löngu tapað. Það vita allir. Refsistefnan hefur litlu skilað öðru en fordómum og hræðslu gagnvart fíkniefnaneytandanum og undirheimum þar sem glæpahópar ráða ríkjum. Neysla hefur aukist og dauðsföllum fjölgar. Fíkniefnin flæða til landsins og skammturinn fæst nú á svipuðu verði og bíómiði.

Sá sem er ánetjaður vímuefnum er sjúklingur en ekki glæpamaður. Þetta ætti öllum að vera löngu orðið ljóst. Það er því óhætt að segja að refsigleðin virkar ekki og er því nýlegt frumvarp Halldóru Mogensen, þingflokksformanns Pírata, eðlilegt og rökrétt skref. Frumvarpið felur í sér að ekki verði lengur ólöglegt að kaupa eða hafa á sér smærri fíkniefnaskammta, svokallaða neysluskammta, en aftur á móti verður áfram bannað að flytja efni inn eða úr landi, selja þau eða framleiða. Markmiðið er að hætt verði að líta á þá sem lent hafa á glapstigum lífsins sem glæpamenn og óþokka og þeim veitt aðstoð fremur en refsing. Frumvarpið er skref í rétta átt, en hálfkák þó.

Portúgalar voru fyrstir til að afglæpavæða fíkniefni þegar þeir samþykktu lög þess efnis árið 2001, eftir heróínfaraldur sem gengið hafði yfir landið. Efasemdir voru um ágæti aðgerðanna en í dag er fjöldi vímuefnaneytenda í Portúgal hlutfallslega mjög lítill miðað við aðrar Evrópuþjóðir. Aðrar þjóðir hafa síðan fylgt í kjölfarið og mótað eigin fíkniefnastefnu með góðum árangri.

Hægt er að nálgast fíknivandann með ýmsum hætti og raunsæ leið er svokölluð skaðaminnkun. Hún veitir nálægð við fíkilinn og dregur úr hættu á HIV-smiti og öðrum heilsufarslegum ógnum sem fíknin leiðir oft af sér. Fleiri ákjósanlegar leiðir eru fyrir hendi en mikilvægt er að stjórnvöld móti sér stefnu í þessum málum. Fíkniefnin eru komin til að vera, því verður ekki breytt. Þar af leiðandi ætti hið opinbera að reyna að stýra farvegi þeirra og jafnvel að íhuga að hreinlega útvega fíklum efnin. Þá að minnsta kosti færast völdin úr höndum undirheimanna en það er þar sem ofbeldið og mannúðarleysið þrífst. Eiturlyfjadreifing hins opinbera gæti jafnframt útrýmt svarta markaðnum með lyfseðilsskyld lyf.

Róttækari aðgerða en hugmynda um neysluskammta er þörf. Æ fleiri festast í viðjum fíknarinnar og fíknin heldur áfram að fella hvert ungmennið á fætur öðru. Við þurfum að hætta að berja höfðinu við steininn og horfast í augu við vandann. Samhliða þarf að fjölga meðferðar­úrræðum og bæta í forvarnir og fræðslu. Allt kapp ætti að setja á aðferðir til skaðaminnkunar.

Betur má ef duga skal og kallað er eftir stjórnmálamanni sem þorir að segja þessa hluti upphátt – og hrinda þeim í framkvæmd.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×