Skoðun

Brenni­vín í bréfa­lúguna – ó­gæfa í böggla­pósti

Þorsteinn Sæmundsson skrifar
Hugmyndaauðgi frjálshyggjumanna við að kokka upp hugmyndir til aukinnar áfengisneyslu á sér fá takmörk.  Nú er boðað nýtt frumvarp frá nýsettum dómsmálaráðherra og verður ekki sagt að það komi sérstaklega á óvart úr þeirri átt. Frumvarpinu er greinilega ætlað að mylja úr þeim grunni sem einkasala áfengis á vegum ríkisins stendur á.

Ótal leiðangrar hafa verið farnir undanfarin ár til þess að reyna að auka framboð á áfengi almenningi til tjóns. Í hverri könnuninni af annarri hefur komið í ljós að mikill meirihluti þjóðarinnar er fylgjandi áframhaldandi einkasölu áfengis á vegum ríkisins.  Það hefur ekki stöðvað þá sem vilja hafa vit fyrir þjóðinni í málinu að prika sífellt upp með nýjar tillögur til sölu áfengis á vegum einkaaðila.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur hvatt önnur ríki Evrópu þar sem lítt heft aðgengi hefur leitt til óhóflegrar áfengisneyslu til að fara að dæmi Íslendinga, Norðmanna, Svía og Finna í einkasölu áfengis á vegum ríkisins.Fulltrúar allra stétta í heilbrigðisþjónustu hafa varað við tilslökunum við sölu áfengis hér á landi. Landlæknir, læknafélagið, sálfræðingafélagið svo einhver séu nefnd. Þeir sem vinna að málefnum barna m.a. Barnaheill foreldrasamtök og ungmennasamtök ljúka öll upp einum rómi og skora á alþingismenn sárbæna þá réttara sagt til að halda óbreyttu kerfi en allt til einskis.

Hér á landi (og á þingi) er óhemju ósvífinn lítill minnihluti sem lætur sér ekki segjast og flytur hvert málið af öðru til að reyna að troða auknu framboði áfengis uppá þjóðina. Fyrst í stað átti samkvæmt tillögum þeirra að troða áfengi inn í alla stórmarkaði við litlar undirtektir. Því næst átti að gefa þjóðinni inn málið í matskeiðum með því að áfengi yrði selt í kósý sérverslunum (líkt og verslunum ÁTVR) en í einkaeigu. Það hlaut heldur ekki hljómgrunn. En nú er komin fram fram hugmynd sem líkja má við að gefa fólki inn hugmyndina í teskeið. Nú skal brennivín sent í bréfalúguna, pantað á netinu.

Nokkur „nostalgía“ því hugmyndin minnir á póstkröfur fyrir áratugum síðan. Þá þurfti reyndar að sækja góssið í pósthús og var það nokkuð áberandi og tafsöm athöfn. Trukkur frá Póstinum eða DHL vekur sömu athygli akandi um í íbúðargötum dreifandi sprúttinu í hverja lúgu eða póstkassa. Athyglin og áberandi athafnir eru samt aukaatriði í þessari mynd.

Aðalatriðið er aukning framboðs sem leiðir til aukinnar neyslu og höggið er skarð í einkasölu ríkisins sem er skilvirk og rekin með lýðheilsu að leiðarljósi. Það skiptir ekki máli hver aðferðin er, að troða áfengi í stórverslanir, sérverslanir eða í bréfalúguna. Allar munu þær hafa skaða, heilsuleysi og ógæfu í för með sér fyrir okkur og afkomendur okkar. 

Höfundur er þingmaður Miðflokksins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×