
Töldu rétt að upplýsa lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu

Greint var frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að forsætisráðherra, hafi vísað máli vegna meints upplýsingaleka frá Seðlabankanum til Ríkisútvarpsinns í aðdraganda húsleitar hjá Samherja árið 2012 til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem lekinn kunni að fela í sér refsivert brot.
„Aðdragandi málsins er sá að ég óskaði eftir greinagerð frá bankaráði Seðlabankans snemma á þessu ári vegna Samherjamálsins og í kjölfar þess að hún kom fram óskuðum við eftir viðbótarupplýsingum, meðal annars um þennan meinta upplýsingaleka,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu. Síðustu gögn í því máli hafi borist forsætisráðuneytinu í ágúst.
„Eftir að hafa farið ýtarlega yfir þau gögn þá var það okkar niðurstaða að réttast væri að upplýsa lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu um þetta mál,“ segir Katrín. Eðli málsins samkvæmt sé forsætisráðuneytið ekki í neinni stöðu til þess að leggja sjálfstætt mat á málið eða framkvæma sjálfstæða rannsókn að sögn Katrínar. „En við töldum hins vegar rétt að upplýsa lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu um þetta og vísa þannig í raun og veru málinu til rétts aðila.“
Þannig að sem stendur er þetta mál ekki í neinu frekara ferli innan forsætisráðuneytisins?
„Nei, í raun og veru ekki enda erum við ekki í neinni stöðu til þess að rannsaka þetta mál sérstaklega,“ segir Katrín.
Tengdar fréttir

Segir RÚV alltaf hafa verið þátttakanda í Samherjamálinu
Forsætisráðherra vísaði mögulegum leka frá Seðlabankanum til RÚV um rannsókn á Samherja til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Fráleitt að tala um Ríkisútvarpið sem geranda
Það er fráleitt að tala um Ríkisútvarpið sem geranda í máli seðlabankans gegn Samherja að sögn formanns blaðamannafélagsins, líkt og forstjóri Samherja hefur gert. Fréttastjóri Ríkisútvarpsins segir það beinlínis vera hlutverk fjölmiðla að fjalla um mál sem þessi.

Meintum leka Seðlabankans til RÚV vísað til lögreglu
Forsætisráðherra hefur vísað máli vegna ætlaðs upplýsingaleka frá Seðlabankanum til RÚV í aðdraganda húsleitar hjá Samherja til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem lekinn kunni að fela í sér refsivert brot. Þetta kemur fram í bréfi forsætisráðuneytisins til lögreglunnar. Rannsókn innri endurskoðanda Seðlabankans leiddi í ljós að framkvæmdastjóri gjaldeyriseftirlits Seðlabankans var í tölvupóstsamskiptum við starfsmann RÚV í rúman mánuð áður en ráðist var í húsleitina 27. mars 2012. Frétta- og myndatökumenn RÚV voru mættir við skrifstofur Samherja áður en húsleitin hófst.