Loksins sigur á útivelli hjá Tottenham og Real í stuði | Öll úrslit kvöldsins Anton Ingi Leifsson skrifar 6. nóvember 2019 22:00 Son sendi Andre Gomes kveðjur í kvöld. vísir/getty Tottenham vann lífsnauðsynlegan sigur á Rauðu stjörnunni er liðin mættust í Serbíu í kvöld. Lokatölur 4-0 sigur Tottenham. Giovani Lo Celso kom Tottenham yfir á 34. mínútu og Heung-Min Son skoraði tvö mörk í síðari hálfleiknum. Daninn Christian Eriksen skoraði fjórða markið á 85. mínútu. Tottenham er í öðru sæti riðilsins með sjö stig og er komið í góða stöðu í riðlinum. Rauða stjarnan er í þriðja sætinu með þrjú stig og Olympiakos á botninum með eitt.Tottenham have won an away game in all competitions for the first time since May 2019 against Ajax. Their 182 day wait is finally over. pic.twitter.com/4kmJHIeUWG — Squawka Football (@Squawka) November 6, 2019 Real Madrid var í stuði á heimavelli er Galatasaray kom í heimsókn. Lokatölur urðu 6-0 sigur þeirra spænsku en staðan var 4-0 í hálfleik. Það var frá upphafi ljóst í hvað stefndi því eftir stundarfjórðung var staðan orðinn 3-0. Rodrygo hafði skorað tvö mörk og Sergio Ramos af vítapunktinum. Karim Benzema bætti við tveimur mörkum, einu í sitthvorum hálfleiknum, og Rodrygo fullkomnaði þrennuna í uppbótartíma síðari hálfleiks. Í sama riðli vann PSG 1-0 sigur á Club Brugge með marki Mauro Icardi. PSG á toppnum með tólf stig, Real með sjö, Club Brugge tvö og Galatasaray eitt.Karim Benzema has matched Lionel Messi's incredible Champions League record.https://t.co/KmVbNWKGNXpic.twitter.com/7LfusM73TD — BBC Sport (@BBCSport) November 6, 2019Öll úrslit kvöldsins:A-riðill: PSG - Club Brugge 1-0 Real Madrid - Galatasaray 6-0B-riðill: Bayern Munchen - Olympiacos 2-0 Crvena Zvezda - Tottenham 0-4C-riðill: Atalanta - Manchester City 1-1 Dinamo Zagreb - Shaktar Donetsk 3-3D-riðill: Lokamotiv Moskva - Juventus 1-2 Bayer Leverkusen - Atletico Madrid 2-1 Meistaradeild Evrópu
Leik lokið: Holland - Ísland 27-25 | Tveggja marka tap niðurstaðan eftir flotta frammistöðu gegn erfiðum andstæðingi Handbolti
Leik lokið: Holland - Ísland 27-25 | Tveggja marka tap niðurstaðan eftir flotta frammistöðu gegn erfiðum andstæðingi Handbolti