Bæði mörkin skoraði Enes Unal. Fyrra markið á 17. mínútu og fjórum mínútum síðar tvöfaldaði hann forystuna úr vítaspyrnu.
LIVE — Turkey defeats Andorra 2-0 in last Euro 2020 qualifiers match as it heads to the championship for the 5th time pic.twitter.com/HKDJBSAaD0
— DAILY SABAH (@DailySabah) November 17, 2019
Framherjinn leikur með Valladolid en Tyrkirnir voru fyrir leikinn í kvöld búnir að tryggja sér sæti á EM. Það gerðu þeir með jafntefli gegn Íslandi í síðustu umferð.
Tyrkirnir enda því í 2. sætinu með 23 stig en Andorra í næst neðsta sætinu með fjögur stig.