Blue Car Rental var stofnað árið 2010 af Magnúsi og eiginkonu hans, Guðrún Sædal Björgvinsdóttir. Þau fóru af stað með aðeins fimm bílaleigubíla en í dag telur bílaflotinn yfir tvö þúsund bíla, sem gerir Blue Car Rental eina af stærstu bílaleigum landsins.
Vöxturinn hefur verið ævintýralegur en velta fyrirtækisins tvöfaldaðist ár frá ári. Auk þess hefur bílaleigan alltaf skilað hagnaði þrátt fyrir að starfa á miklum samkeppnismarkaði.
Sigurður Sindri Magnússon stendur á bak við þættina Íslenski draumurinn ásamt Eyþóri Jónssyni. Lagt er upp með að gefa innsýn inn í heim þeirra sem hafa stofnað og rekið sín eigin fyrirtæki á Íslandi og jafnvel veita öðrum innblástur. Hægt er að kynna sér þá nánar og sjá fleiri þætti á síðunni islenskidraumurinn.is.