Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, fundaði með starfsfólki fyrirtækisins á Akureyri í dag. Þetta herma heimildir fréttastofu.
Afhjúpanir Kveiks og Stundarinnar um mútugreiðslur og skattaundanskot fyrirtækisins í Afríkuríkinu Namibíu undanfarin ár hafa vakið mikla athygli og hörð viðbrögð í gær og í dag.
Hefur fréttastofa ítrekað reynt að ná tali af Þorsteini Má í dag en fengið þær upplýsingar að hann muni ekki tjá sig að svo stöddu.
Eina sem heyrst hefur frá Samherja eftir að umfjöllun um málið hófst er yfirlýsing sem fyrirtækið sendi frá sér í gær. Þar skellir Þorsteinn Már skuldinni á Jóhannes Stefánsson, uppljóstrarann í málinu, sem var rekstrarstjóri Samherja í Namibíu þar til ársins 2016 þegar hann var rekinn frá fyrirtækinu.
Greiðslur til hákarlanna þriggja, eins og þeir Tamson „Fitty“ Hatuikulipi, tengdasonur Bernhardt Esau, fráfarandi sjávarútvegsráðherra Namibíu, Sacky Shangala, fráfarandi dómsmálaráðherra Namibíu, og James Hatuikulipi, stjórnarformaður ríkisfyrirtækisins Fishcor, sem útdeilir kvóta í Namibíu, hafa verið kallaðir héldu þó áfram eftir að Jóhannes lét af störfum og hafa haldið áfram fram á þetta ár, samkvæmt frétt Stundarinnar.
Málið hefur nú þegar dregið dilk á eftir sér í Namibíu. Í dag sögðu þeir Esau og Shangala af sér sem ráðherrar eftir ásakanir um að þeir hafi þegið mútur frá Samherja í skiptum fyrir kvóta.
