Oddný ræddi Samherjamálið ásamt Lilju Rafney Magnúsdóttur, þingmanni Vinstri grænna og formanni atvinnuveganefndar, í útvarpsþættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Greint var frá því í fréttaskýringaþættinum Kveik í gærkvöldi að vísbendingar væru um að útgerðarfyrirtækið Samherji hafi greitt embættismönnum í Namibíu rúman milljarð króna í mútur til að komast yfir kvóta þar í landi. Oddný sagði málið afar alvarlegt og að viðeigandi embætti og stofnanir þurfi nú að fara yfir stöðuna.
„Þegar maður hugsar til þess þá skammast maður sín hræðilega og veltir fyrir sér hvernig við getum beðið þau afsökunar á þessu hátterni. Við byggjum upp kerfi til að styðja ríka þjóð sem átti í erfiðleikum með að nýta sínar auðlindir og sendum síðan okkar öflugasta útgerðarfyrirtæki til að hrifsa það til sín. Það er auðvitað skömm og það er auðvitað spilling og græðgi sem kemur upp í hugann.“
Sjá einnig: Þorsteinn Már skellir skuldinni á uppljóstrarann
Lilja kvaðst ánægð með að héraðssaksóknari hafi tekið málið til rannsóknar, líkt og hann staðfesti í samtali við Vísi í gær, en tók undir með Oddnýju.
„Maður er með skömm í hjarta eins og Oddný nefnir, að íslenskir aðilar hagi sér svona ef rétt er, gagnvart fátækum þjóðum, sem við nota bene erum búin að veita þróunaraðstoð.“

„Auðvitað eiga allir rétt á að bera hönd fyrir höfuð sér og koma með sínar fullyrðingar í sínu máli og leggja fram sín rök í þessu máli. […] En þetta er bara það mikið sem þarna kemur fram að ég trúi ekki öðru en að það sé fiskur undir steini þarna, og líklega miklu meira en það.“
Þá benti Oddný á annað sem væri alvarlegt í málinu í tengslum við nýlega tilfærslu Íslands yfir á gráan lista yfir ríki sem hafa ekki nægar varnir gegn peningaþvætti.
„[…] og þarna eru á ferðinni mútur, skattsvik, skattaskjól og peningaþvætti. Þetta er sannarlega ekki til að auka hróður okkar í viðskiptalífinu, þessar ljótu sögur. Þannig að ég hef líka áhyggjur af því.“

Namibíumennirnir eru þrír af þeim aðilum sem Samherji er sagður hafa greitt mútur til að tryggja útgerðarfélaginu hestamakrílskvóta í Namibíu. Þá er Þorsteinn Már sagður hafa kynnt Kristján Þór sem „sinn mann“ í ríkisstjórninni. Kristján Þór var stjórnarformaður Samherja og vann hjá fyrirtækinu sem sjómaður samhliða þingmennsku fyrir nokkrum árum.
Í svari við fyrirspurnum Stundarinnar segist Kristján Þór ekki hafa setið fund með umræddum mönnum um starfsemi Samherja, enda eigi hann ekkert erindi á slíkan fund þar sem hann hafi „ekki haft afskipti af þeirri starfsemi síðan ég sat þar í stjórn fyrir 19 árum síðan.“ Hann geti þó ekki útilokað að hafa rekist á og heilsað mönnunum, ef þeir hafi verið staddir á sama stað, á sama tíma fyrir rúmum fimm árum.
Báðar lögðu Lilja Rafney og Oddný áherslu á að þær þekktu Kristján Þór eingöngu af heilindum og heiðarleika.
„Ég ætla ekki að svara fyrir það. Hann verður að svara fyrir slíkt sjálfur. Þeir sem þarna eiga í hlut, í þessari rannsókn, verða að meta það í þessu tilfelli,“ sagði Lilja Rafney. Oddný tók í sama streng en benti þó á að það væri vafasamt að sjávarútvegsráðherra hefði setið í stjórn Samherja.
„Ég ætla ekki að fara að dæma hann í beinni útsendingu á Bylgjunni. Ég efast ekki um hans heilindi. Hins vegar lítur það illa út þegar myndin er dregin upp að sjávarútvegsráðherra hafi verið stjórnarformaður Samherja.“
En leit það ekki alltaf illa út?
„Jú, en enn verr núna þegar við erum að horfa út frá sjónarhóli erlendra aðila.“
Viðtalið við Lilju Rafneyju og Oddnýju má hlusta á í spilaranum hér fyrir neðan.