Mourinho útskýrir afhverju hann tekur við Tottenham Arnar Geir Halldórsson skrifar 20. nóvember 2019 07:30 Karakter vísir/getty
Eins og greint var frá snemma í morgun hefur enska úrvalsdeildarliðið Tottenham gengið frá ráðningu á Jose Mourinho sem eftirmanni Mauricio Pochettino sem var látinn taka pokann sinn í gærkvöldi. Mourinho er að snúa aftur í enska boltann en hann var rekinn frá Manchester United í desember 2018 og hefur ekki þjálfað síðan. „Ég er spenntur fyrir að ganga til liðs við félag með jafn glæsta arfleið og ástríðufulla stuðningsmenn eins og Tottenham hefur,“ sagði Mourinho þegar tilkynnt var um ráðninguna. „Gæðin í leikmannahópnum og í akademíunni gerir mig spenntan. Að fá tækifæri til að vinna með þessum leikmönnum var það sem fékk mig til að taka þetta starf,“ segir Mourinho. Ljóst er að forráðamenn Tottenham sjá framtíð liðsins undir stjórn Mourinho því hann gerir samning út leiktímabilið 2022/2023. Portúgalinn sigursæli hefur sannarlega verk að vinna því Tottenham hefur ekki verið sannfærandi í vetur; situr í 14.sæti deildarinnar og margir leikmanna liðsins virðast ekki hafa áhuga á að spila fyrir félagið lengur. Ber þar helstan að nefna Christian Eriksen.
Enski boltinn Tengdar fréttir Jose Mourinho tekinn við Tottenham Jose Mourinho hefur verið ráðinn nýr knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham Hotspurs. 20. nóvember 2019 06:56 Pochettino rekinn frá Tottenham Argentínumaðurinn er farin frá Norður-Lundúnarliðinu. 19. nóvember 2019 19:42 Mest lesið Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Fótbolti Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Enski boltinn „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Fótbolti Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Fótbolti Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti Í beinni: Arsenal - West Ham | Standast skyttur Arteta prófið eða falla þær? Enski boltinn Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Fótbolti Uppgjör: ÍR-ÍBV 34-30 | ÍR-stelpur ekki vandræðum með Eyjakonur í Skógarselinu Handbolti Fleiri fréttir Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Í beinni: Arsenal - West Ham | Standast skyttur Arteta prófið eða falla þær? Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Kostaði Man. United meira en 2500 milljónir að reka Ten Hag og Ashworth Casemiro fer ekki fet Arsenal lét heitasta framherjann í frönsku deildinni fara fyrir „slikk“ Antony með fleiri mörk í febrúar en allt Man. United liðið Segir að Amorim þurfi 2-3 félagaskiptaglugga til að laga hópinn Sektaðir fyrir að öskra á Michael Oliver Arnór laus úr prísund Blackburn Biður til Guðs að Arsenal taki titilinn Pep varð fyrst hræddur um Haaland en er nú vongóður Gleymdi að gefa konunni gjöf á Valentínusardaginn Guðlaugur um Rooney: „Hann missti traustið gagnvart mér“ Maddison var að sussa á Roy Keane Ekki unnið heimaleik í 105 daga þangað til Man United kom í heimsókn Enginn lagt upp fleiri mörk en Ederson Hetjan Maddison: Er hérna til að skapa færi og skora mörk Man City fór létt með Liverpool „Staða okkar í töflunni veldur mér áhyggjum“ Dagný og Hlín komu við sögu í sigrum West Ham og Leicester Sjá meira
Jose Mourinho tekinn við Tottenham Jose Mourinho hefur verið ráðinn nýr knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham Hotspurs. 20. nóvember 2019 06:56
Pochettino rekinn frá Tottenham Argentínumaðurinn er farin frá Norður-Lundúnarliðinu. 19. nóvember 2019 19:42