Sjöundi desember er runninn upp og því sautján dagar til jóla. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.
Vísir ætlar að telja niður til jóla með fallegu jólalagi úr safni sínu á hverjum degi.
Í dag býður Vísir upp á flutning Unnsteins Manúels á laginu Blue Christmas. Unnsteinn kíkti í heimsókn á Bylgjuna í desember 2013 og flutti ábreiðu sína í aðdraganda tónleika sem hann hélt með Hermigervil og Sísí Ey í Vodafone-höllinni.
