Festi hefur haft samband við Vinnumálastofnun vegna endurgreiðslu hlutabótaleiðarinnar Andri Eysteinsson skrifar 12. maí 2020 18:55 Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festis, segir fyrirtækið ætla að endurgreiða hlutabótaleiðina.
Eignarhaldsfélagið Festi hefur haft samband við Vinnumálastofnun með það að markmiði að endurgreiða þá upphæð sem fyrirtækið sparaði sér með aðgerðunum. Þetta segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festis í samtali við Vísi í kvöld. „Við höfðum samband við Vinnumálastofnun á föstudaginn til að endurgreiða hlutabótaleiðina. Það er ekki enn þá komið í ferli hvernig því verður háttað,“ sagði Eggert. Festi, sem rekur verslanir Krónunnar og Elko auk bensínstöðva N1 og vöruhótelsins Bakkans, hafði verið gagnrýnt fyrir að hafa nýtt sér hlutabótaleiðina. Eggert segist eiga von á því að í vikunni skýrist hvernig endurgreiðslu verði háttað. „Ferlið er ekki til og það er verið að hanna það,“ segir Eggert og segir það eiga við um öll fyrirtæki sem hafa lofað endurgreiðslu. „Starfsmennirnir fengu greiðslurnar en ekki fyrirtækin. Við eigum von á því að fá svar í vikunni hvernig við eigum að fara að þessu,“ sagði Eggert í samtali við Vísi. Fyrr í dag tilkynnti Össur hf. að ákvörðun um endurgreiðslu hafi verið tekin, áður höfðu Hagar og Skeljungur auk Kaupfélags Skagfirðinga sagst ætla að endurgreiða Vinnumálastofnun.
Efnahagsmál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Markaðir Hlutabótaleiðin Mest lesið Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Viðskipti innlent Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ Atvinnulíf Plasttappamálið flaug í gegnum þingið Neytendur Íhuga hærri tolla á alla Viðskipti erlent Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Viðskipti innlent Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur Samstarf Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara Samstarf Eldisfiskur fluttur út fyrir 54 milljarða króna Viðskipti innlent Deila um þvottahús stöðvar ekki Hreint í bili Viðskipti innlent BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Samstarf Fleiri fréttir Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Deila um þvottahús stöðvar ekki Hreint í bili Eldisfiskur fluttur út fyrir 54 milljarða króna Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Trúir ekki að menn loki fiskvinnslu til að mótmæla veiðigjöldum „Þetta er afnotagjald“ Play komið með flugrekstrarleyfi á Möltu Jón Ólafur í framboði til formanns SA Eigendaskipti hjá Fótbolta.net Feðgarnir nú aftur einu hluthafarnir í Eyri Invest Eyjólfur Árni hættir hjá SA Hagnaðist um tvo milljarða: Ljóst að greinin megi ekki við hækkunum Verðbólga heldur áfram að hjaðna Versta sviðsmyndin sé að lenda á milli Evrópu og Bandaríkjanna í tollastríði Íhuga að sameina lífeyrissjóði „Reiðarslag fyrir þau þorp þar sem stundaðar eru veiðar og vinnsla“ Tollastríðið gæti vel haft áhrif á lífskjör almennings Salóme tekur við af stofnanda Ísorku Helgi ráðinn sölustjóri Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Kemur nýr inn í fjármálastöðugleikanefnd Mikil óvissa í alþjóðamálum gæti reynt á þjóðarbúið Segir útlitið svart fyrir sjávarútveginn og breytingarnar illa unnar „Íslenskur sjávarútvegur er burðarás í atvinnulífinu“ Lýsa yfir verulegum áhyggjum af tvöföldun veiðigjalda Allt að tvöfalda veiðigjöldin og segja útgerðina þola það vel Aflinn verði verkaður annars staðar eftir breytingar stjórnarinnar Sækja á sjötta milljarð króna Laun eftir kjarasamningi „gervistéttarfélags“ sögð tugum þúsunda lægri Spá 1,8 prósent hagvexti í ár og 2,7 prósent verðbólgu á næsta ári Sjá meira