Parísarbúum bannað að skokka á daginn Samúel Karl Ólason skrifar 7. apríl 2020 14:55 Íbúar Parísar fá ekki lengur að fara út á daginn og stunda líkamsrækt. EPA/IAN LANGSDON
Íbúum Parísar hefur verið meinað að stunda líkamsrækt utandyra á milli tíu og sjö á daginn. Þessar hertu reglur taka gildi á morgun en Frakkland er meðal þeirra landa í heiminum þar sem flestir hafa látið lífið vegna nýju kórónuveirunnar, eða 8,911. Búið er að staðfesta nærri því hundrað þúsund smit í landinu. Umfangsmikið útgöngubann var sett á í Frakklandi fyrir tæpum mánuði en fólki hefur þó verið hleypt út til að versla, fara til læknis eða hreyfa sig, innan kílómetra frá heimili þeirra. Þetta bann hefur nú verið sérstaklega hert í París. Hundruð þúsunda Frakka hafa verið sektaðir fyrir að brjóta gegn þessum reglum, samkvæmt frétt BBC. Í dag er gott veður í París og hafa fjölmargir farið út að hlaupa. Olivier Véra, heilbrigðisráðherra Frakklands, sagði í morgun að faraldurinn hefði ekki enn náð hámarki þar í landi. Hann sagði að útgöngubannið yrði í gildi eins lengi og þörf væri á því. Jákvæði merki um að hægja sé á útbreiðslu veirunnar í Frakklandi hafa sést á undanförnum dögum. Véra tilkynnti þó í dag að innlögnum á gjörgæslur hafi fjölgað og það sé til merkis um að það að langt sé í land áður en hægt verði að draga úr félagsforðun.
Frakkland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Erlent Fleiri fréttir Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Sjá meira