Hildur fékk ekkert á hreint hjá KR og leitaði annað Sindri Sverrisson skrifar 14. maí 2020 18:00 Hildur Björg Kjartansdóttir ræddi við Henry Birgi í Sportinu í dag. MYND/STÖÐ 2 SPORT Vegna óvissunnar sem ríkir hjá körfuknattleiksdeild KR og vegna þess að félagið kom ekki með klárt tilboð á borð til hennar, ákvað Hildur Björg Kjartansdóttir að róa á ný mið. Hildur Björg skrifaði í gær undir samning við Val og þar með verða tvær bestu körfuknattleikskonur landsins, alla vega að flestra mati, sameinaðar á Hlíðarenda þar sem Helena Sverrisdóttir verður spilandi aðstoðarþjálfari. Benedikt Guðmundsson landsliðsþjálfari tilkynnti í byrjun vikunnar að hann væri hættur sem þjálfari KR og er hann tekinn til starfa hjá Fjölni. KR er því án þjálfara sem stendur og það hafði áhrif á ákvörðun Hildar sem fékk reyndar fá svör í Vesturbænum varðandi framtíðina: „Það voru margir klúbbar í sambandi við mig og ég var í rauninni svolítið lengi að heyra frá KR. Það var ekki fyrr en ég hafði sjálf samband við þá. Það er mikil óvissa varðandi þjálfaramál og leikmannahópinn, og ég fékk einhvern veginn aldrei neitt á hreint um hvað myndi verða. Ég var kominn á þann stað með öðrum liðum að ég ákvað að ganga frá því. Það var það besta í stöðunni fyrir mig í dag,“ sagði Hildur við Henry Birgi Gunnarsson í Sportinu í dag. Þannig að í raun voru KR-ingar of seinir til að bjóða þér upp á eitthvað? „Já, ég myndi segja það.“ Klippa: Sportið í dag - Hildur um þá ákvörðun að fara í Val frá KR Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum. Dominos-deild kvenna Körfubolti Sportið í dag KR Valur Mest lesið Lýsti ofbeldinu sem faðir hans beitti hann Sport Paul vill nú berjast við fyrrum heimsmeistara í pílu Sport Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Íslenski boltinn Rekinn fyrir að vera í sambandi með leikmanni en vill annað tækifæri Enski boltinn Alfreð Gísla: „Skemmdarverk á handboltanum“ Handbolti Rannsaka hatursorðræðu í garð Banda Fótbolti Eygló tilnefnd sem lyftingakona ársins í Evrópu Sport „Bestu liðin hafa ekkert að fela og deila upplýsingum“ Handbolti Stórskotaliðið gerði sitt þegar Norðmenn lögðu Ísrael Fótbolti Elliði Snær átti sinn þátt í óvæntum sigri Handbolti Fleiri fréttir Martin dældi út stoðsendingum í enn einu Evróputapinu Undraskot Curry fór ekki ofan í eftir allt saman Evans farinn frá Njarðvík Lögmál leiksins: Menningin dáin hjá Heat Kippti í hár körfuboltastelpu og var rekinn Risinn á Álftanesi nýtrúlofaður og borðar hunang á bekknum Martin með tíu stoðsendingar en liðið kastaði sigrinum frá sér Styrmir stigahæstur gegn meisturunum Máluðu Smárann rauðan Græn gleði í Smáranum Lakers fékk skell í endurkomu LeBrons Uppgjörið: KR - Valur 78-96 | Valsmenn bikarmeistarar í fimmta sinn „Eins og ég sé kominn í úrslitakeppnina tveimur vikum áður en hún byrjar“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 81-74 | Njarðvíkingar bikarmeistarar „Það er ekkert gefið og þú verður að vinna fyrir öllu“ „Ég er alltaf bjartsýnn en alltaf stressaður“ Bíður stórleiksins: „Búið að keyra upp alvöru stemningu“ Byrjaði í fyrsta sinn í þrjú ár svo einhverfur sonur hans gæti séð hann spila Mætir KR-ingum á morgun en stýrði þeim síðast: „Þeir slátruðu okkur“ „Hvaða leikmaður gefur frá sér mestu Doc orkuna?“ Bronny stigahæstur hjá Lakers Uppselt á úrslitaleik KR og Vals Celtics selt sem dýrasta félag í sögu Bandaríkjanna Forkaupsréttur fyrir Íslendinga í fimm daga Sigurður Ingimundar.: Þurfum að vera meira solid Joshua: Orka og undirbúningur skiluðu þessum sigri „Markmiðið fyrir tímabilið að vinna þennan bikar“ „Sviðið sem við viljum vera á“ Uppgjörið: Keflavík - Valur 67-91 | Frábærir Valsmenn rúlluðu yfir Keflavík á leið sinni í bikarúrslit Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-91 | KR í bikarúrslit eftir spennutrylli gegn Stjörnunni Sjá meira
Vegna óvissunnar sem ríkir hjá körfuknattleiksdeild KR og vegna þess að félagið kom ekki með klárt tilboð á borð til hennar, ákvað Hildur Björg Kjartansdóttir að róa á ný mið. Hildur Björg skrifaði í gær undir samning við Val og þar með verða tvær bestu körfuknattleikskonur landsins, alla vega að flestra mati, sameinaðar á Hlíðarenda þar sem Helena Sverrisdóttir verður spilandi aðstoðarþjálfari. Benedikt Guðmundsson landsliðsþjálfari tilkynnti í byrjun vikunnar að hann væri hættur sem þjálfari KR og er hann tekinn til starfa hjá Fjölni. KR er því án þjálfara sem stendur og það hafði áhrif á ákvörðun Hildar sem fékk reyndar fá svör í Vesturbænum varðandi framtíðina: „Það voru margir klúbbar í sambandi við mig og ég var í rauninni svolítið lengi að heyra frá KR. Það var ekki fyrr en ég hafði sjálf samband við þá. Það er mikil óvissa varðandi þjálfaramál og leikmannahópinn, og ég fékk einhvern veginn aldrei neitt á hreint um hvað myndi verða. Ég var kominn á þann stað með öðrum liðum að ég ákvað að ganga frá því. Það var það besta í stöðunni fyrir mig í dag,“ sagði Hildur við Henry Birgi Gunnarsson í Sportinu í dag. Þannig að í raun voru KR-ingar of seinir til að bjóða þér upp á eitthvað? „Já, ég myndi segja það.“ Klippa: Sportið í dag - Hildur um þá ákvörðun að fara í Val frá KR Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.
Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.
Dominos-deild kvenna Körfubolti Sportið í dag KR Valur Mest lesið Lýsti ofbeldinu sem faðir hans beitti hann Sport Paul vill nú berjast við fyrrum heimsmeistara í pílu Sport Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Íslenski boltinn Rekinn fyrir að vera í sambandi með leikmanni en vill annað tækifæri Enski boltinn Alfreð Gísla: „Skemmdarverk á handboltanum“ Handbolti Rannsaka hatursorðræðu í garð Banda Fótbolti Eygló tilnefnd sem lyftingakona ársins í Evrópu Sport „Bestu liðin hafa ekkert að fela og deila upplýsingum“ Handbolti Stórskotaliðið gerði sitt þegar Norðmenn lögðu Ísrael Fótbolti Elliði Snær átti sinn þátt í óvæntum sigri Handbolti Fleiri fréttir Martin dældi út stoðsendingum í enn einu Evróputapinu Undraskot Curry fór ekki ofan í eftir allt saman Evans farinn frá Njarðvík Lögmál leiksins: Menningin dáin hjá Heat Kippti í hár körfuboltastelpu og var rekinn Risinn á Álftanesi nýtrúlofaður og borðar hunang á bekknum Martin með tíu stoðsendingar en liðið kastaði sigrinum frá sér Styrmir stigahæstur gegn meisturunum Máluðu Smárann rauðan Græn gleði í Smáranum Lakers fékk skell í endurkomu LeBrons Uppgjörið: KR - Valur 78-96 | Valsmenn bikarmeistarar í fimmta sinn „Eins og ég sé kominn í úrslitakeppnina tveimur vikum áður en hún byrjar“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 81-74 | Njarðvíkingar bikarmeistarar „Það er ekkert gefið og þú verður að vinna fyrir öllu“ „Ég er alltaf bjartsýnn en alltaf stressaður“ Bíður stórleiksins: „Búið að keyra upp alvöru stemningu“ Byrjaði í fyrsta sinn í þrjú ár svo einhverfur sonur hans gæti séð hann spila Mætir KR-ingum á morgun en stýrði þeim síðast: „Þeir slátruðu okkur“ „Hvaða leikmaður gefur frá sér mestu Doc orkuna?“ Bronny stigahæstur hjá Lakers Uppselt á úrslitaleik KR og Vals Celtics selt sem dýrasta félag í sögu Bandaríkjanna Forkaupsréttur fyrir Íslendinga í fimm daga Sigurður Ingimundar.: Þurfum að vera meira solid Joshua: Orka og undirbúningur skiluðu þessum sigri „Markmiðið fyrir tímabilið að vinna þennan bikar“ „Sviðið sem við viljum vera á“ Uppgjörið: Keflavík - Valur 67-91 | Frábærir Valsmenn rúlluðu yfir Keflavík á leið sinni í bikarúrslit Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-91 | KR í bikarúrslit eftir spennutrylli gegn Stjörnunni Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Valur 67-91 | Frábærir Valsmenn rúlluðu yfir Keflavík á leið sinni í bikarúrslit