Fótbolti

Setti heims­met en þarf ekki Svein­dís Jane að fá að reyna næst?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir stigu léttan dans þegar Ísland hafði tryggt sig inn á EM, fimmta skiptið í röð.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir stigu léttan dans þegar Ísland hafði tryggt sig inn á EM, fimmta skiptið í röð. vísir/Anton

Írska knattspyrnukonan Megan Campbell hefur fengið heimsmet staðfest hjá Heimsmetabók Guinners. Hún er nú sú kona sem hefur náð að kasta lengst úr innkasti.

Fulltrúar Heimsmetabókar Guinners mættu til að mæla innkast frá Campbell og staðfesta í framhaldinu heimsmetið.

Campbell spilar með London City Lionesses, liðinu sem vann sér nýverið sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Lengsta innkastið hennar mældist 37,55 metrar. Það er nú skráð heimsmet hjá Guinners fólki.

Sveindís Jane Jónsdóttir tekur oftast innköstin hjá íslenska landsliðinu og þau skapa oft usla enda kastar okkar kona boltanum langt inn í vítateig andstæðinganna.

Nú er spurningin hvort að það væri ekki sanngjarnast að Sveindís Jane fengi að reyna við metið. Knattspyrnusamband Íslands ætti jafnvel að skipuleggja mælingu þegar landsliðið kemur saman fyrir fyrsta landsleikinn á nýju blendingsgrasi Laugardalsvallar í júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×