Knattspyrnukonan Hallbera Guðný Gísladóttir var gestur hjá Evu Laufey Kjaran í þættinum Eldað með Evu á miðvikudagskvöldið.
Hallbera er þekkt fyrir frábæra takta á knattspyrnuvellinum en ekki svo mikið inni í eldhúsinu.
Eva kenndi henni að matreiða Tikka Masalakjúkling og Súkkulaðimús og að lokum bauð hún vinkonum sínum úr knattspyrnuheiminum í mat.
Þetta gekk nokkuð vel fyrir sig hjá Hallberu sem lærði margt og mikið af Evu Laufey en vinkonur hennar höfðu ekki endilega mikla trú á henni fyrir verkefnið. Hér að neðan má sjá matarboð Hallberu.
Hér að neðan má sjá uppskriftir þáttarins.
Tikka masala kjúklingur
Fyrir 3-4
3 hvítlauksrif
1 msk rifið ferskt engifer
3 msk sítrónusafi
1 dl hrein jógúrt
1 tsk salti
½ rautt chilialdin
1 tsk kóríanderfræ
Handfyllisaxað kóríander
3 tsk garam masala
700 g kjúklingakjöt, skorið í litla bita
Aðferð:
1.Blandið öllum hráefnum saman og skerið kjúklingakjötið í litla bita
2.Setjið allt í plastpoka og inn í kæli í 2 – 3 klukkstundir, best yfir nótt.
3.Eftir þann tíma er kjúklingurinn steiktur á pönnu í 2 – 3 mínútur og síðan fært yfir í pottinn með sósunni og látið malla í 15 – 20 mínútur.
Sósan:
2 – 3 msk ólífuolía
2 hvítlauksrif
1 msk rifið engifer
½ rautt chilialdin
1 tsk túrmerik
1 tsk cumin
1 tsk múskat
2 msk tómatpúrra
200 g hakkaðir tómatar
3 msk sýrður rjómi
3 msk hrein jógúrt
1 dl rjómi
Handfylli ferskur kóríander
Aðferð:
1.Hitið olíu á pönnu og steikið hvítlauk, engifer og chili.
2.Bætið kryddunum út á pönnuna og hrærið.
3.Því næst fara hakkaðir tómatar, tómatpúrra, sýrður rjómi, rjómi og hrein jógúrt saman við.
4.Leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur og steikið kjúklinginn á meðan.
5.Setjið kjúklinginn út í pottinn og leyfið sósunni að malla í 20 mínútur.
6.Smakkið ykkur til með salti og pipar.
Naan brauð
150 ml volgt vatn
200 g hveiti + meiri ef ykkur finnst deigið of blautt
2 tsk þurrger
1 tsk hunang
1 tsk salt
3 msk ab mjólk
1 msk ólífuolía
1msk brætt smjör
1 msk ólífuolía
1 hvítlauksrif
½ tsk salt
1 tsk smátt söxuð steinselja
Aðferð:
1.Blandið vatni, geri og hunangi saman í skál.
2.Leggið viskastykki standa yfir skálina og um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerið tilbúið.
3.Bætið því næst hveitinu, saltinu, ab mjólkinni og ólífuolíunni saman við og hrærið vel saman.
4.Stráið smá hveiti á borð og hnoðið þar til deigið verður samfellt og fínt, leyfið deiginu að hefast í klukkustund.
5.Skerið deigið í litla bita og mótið kökur, þær eiga að vera fremur þunnar.
6.Steikið á heitri pönnu á hvorri hlið í 1-2 mínútur.
7.Blandið saman í skál, smjöri, olíu, salti, steinselju og hvítlauk og penslið á naan brauðin þegar þau eru nýsteikt. Það gefur þeim dásamlegan hvítlaukskeim! Má auðvitað sleppa því ef þið eruð ekki hrifin af hvítlauk.
Raita sósa
250 g ab mjólk
½ agúrka
Salt og pipar
2 msk smátt saxður kóríander
Aðferð:
1.Saxið hráefnin afar smátt og blandið öllu vel saman í skál, geymið helst í kæli í smá stund áður en þið berið sósuna fram
Súkkulaðimús
·200 g súkkulaði
·2 eggjarauður
·500 ml rjómi
·1 msk sykur
·Fersk ber til skrauts.
Aðferð:
1. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði
2. Þeytið rjóma og sykur saman.
3. Kælið súkkulaðið í smá stund, hrærið eggjarauðum saman við ef súkkulaðið er of þykkt þá bætið þið smá rjóma saman við til þess að þynna.
4. Bætið súkkulaðiblöndunni saman við rjómann í nokkrum skömmtum.
5. Kælið og berið fram með ferskum berjum.