Sakfelldir fyrir skattstofusprenginguna Stefán Ó. Jónsson skrifar 9. júlí 2020 15:39 Sprengingin olli miklum skemmdum á framhlið skrifstofuhúsnæðisins. vísir/epa
Tveir sænskir ríkisborgarar voru í dag dæmdir fyrir aðild að sprengingu við skattstofu Danmerkur í ágúst fyrra. Þeir eru báðir á þrítugsaldri og hlaut annar þeirra 4 ára fangelsisdóm en hinn 5 ára. Mennirnir voru sakfelldir fyrir að leggja sprengju við skrifstofuhúsnæðið í Norðurhöfn þann 6. ágúst. Töluverðar skemmdir urðu á framhlið byggingarinnar, nærliggjandi hús nötruðu og glerbrot úr brotnum rúðum dreifðust tugi metra. Tjónið nam um 6,2 milljónum danskra króna, sem í dag eru rúmlega 132 milljónir íslenskra króna. Tveir starfsmenn Skattsins voru í húsinu en enginn slasaðist alvarlega. Saksóknarar höfðu krafist þess að mennirnir tveir, Zacharias Tamer Hamzi sem er 24 ára og Nurettin Nuray Syuleyman sem er ári yngri, fengju að lágmarki sjö ára fangelsisdóm á grundvelli laga um hryðjuverk. Borgarréttur Kaupmannahafnar féllst hins vegar ekki á þau rök, dæmdi þá í fjögurra og fimm ára fangelsi sem fyrr segir og vísaði þeim úr landi. Þeir munu því afplána dóma sína í Svíþjóð. Verjendur þeirra hafa ekki tekið ákvörðun um framhaldið en þeir hafa tvær vikur til ákveða hvort þeir vilji áfrýja dómnum.
Danmörk Svíþjóð Mest lesið Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Indland gerir árás á Pakistan Erlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent „Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Innlent Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Innlent Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Erlent Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt Innlent Konan í Bríetartúni komin á götuna Innlent Fleiri fréttir Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa Árásarmaðurinn í Uppsölum handtekinn Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Ætla að hernema Gasaströndina Segir réttarríkið standa í vegi sínum Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Föður rafmyntajöfurs rænt og skorinn af honum fingur Fjarhægrimaður sigurstranglegastur í forsetakosningum Rúmena Fimm handteknir grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“ PAP vann stórsigur í Singapúr Innsti hringur Trump í skærum við þýsk yfirvöld Verkamannaflokkurinn bar sigur úr býtum Sjá meira