Rafíþróttir

Ræðst í beinni hver er bestur á landinu í FIFA – „Ætlum að mætast í úrslitunum“

Sindri Sverrisson skrifar
Heimsmeistaralið Frakka er vitaskuld eitt albesta liðið í FIFA-leiknum en á Íslandsmótinu nota menn lið sem þeir hafa sett saman sjálfir í Ultimate Team-hluta leiksins.
Heimsmeistaralið Frakka er vitaskuld eitt albesta liðið í FIFA-leiknum en á Íslandsmótinu nota menn lið sem þeir hafa sett saman sjálfir í Ultimate Team-hluta leiksins. MYND/STÖÐ 2 SPORT

Það ræðst í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport á morgun hver er besti spilari landsins í FIFA 20 tölvuleiknum. Þá fara fram undanúrslit og úrslit.

Aron Þormar Lárusson og Róbert Daði Sigurþórsson úr Fylki, sem eru í hópi bestu þriggja prósenta heims í leiknum, eru báðir í undanúrslitunum og þeir ræddu við Kjartan Atla Kjartansson í Sportinu í dag.

Undanúrslitin hefjast kl. 15 á morgun. Aron Þormar mætir Leifi Sævarssyni úr LFG en Róbert Daði mætir Tindi Örvari Örvarssyni úr Elliða. Hátt í 60 spilarar hófu keppni á Íslandsmótinu og á morgun verður Íslandsmeistari krýndur.

„Við ætlum að mætast í úrslitunum,“ segja þeir Aron og Róbert, en Róbert hafði betur þegar þeir félagar mættust síðast, með marki í uppbótartíma.

Róbert sagði Kjartani frá því að hann hefði á einum tímapunkti verið í hópi 100 bestu spilara heims. Aron var í nýstofnuðu landsliði Íslands sem mætti Rúmeníu í vináttulandsleik á dögunum.

Innslagið má sjá hér að neðan.

Klippa: Sportið í dag - Úrslitin ráðast á Íslandsmótinu í FIFA

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.


Tengdar fréttir

Árbæingar áberandi í Íslandsmótinu í FIFA

Þrír af fjórum leikmönnum í undanúrslitum Íslandsmótsins í eFótbolta koma frá íþróttafélögum í Árbænum. Alls tóku 50 leikmenn þátt í mótinu en nú standa fjórir eftir.






×