Maðurinn sem lést er sexhjól sem hann ók valt í Reyðarfirði þann 6. ágúst síðastliðinn hét Andrés Elisson.
Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Austurlandi. Andrés var fæddur árið 1957 og búsettur á Eskifirði. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvær uppkomnar dætur.