Ómar Ingi Magnússon átti góðan leik þegar Aalborg vann Team Tvis Holstebro, 23-21, í uppgjöri tveggja efstu liða dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.
Ómar skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum og gaf sex stoðsendingar í leiknum. Hann skoraði tvö síðustu mörk Aalborg og tryggði meisturunum sigurinn.
Selfyssingurinn byrjaði aftur að spila með Aalborg fyrr í þessum mánuði eftir að hafa verið frá í átta mánuði vegna höfuðmeiðsla.
Danski handboltamaðurinn og handboltaspekingurinn Rasmus Boysen, sem leikur með Sigvalda Guðjónssyni hjá Elverum í Noregi, hrósaði Ómari eftir leikinn.
„Það er stórkostlegt að sjá Ómar Inga Magnússon aftur á vellinum eftir meiri háttar heilahristing. Frábær leikmaður!“ skrifaði Boysen á Twitter.
It’s fantastic to see Omar Ingi Magnusson back in business after the severe concussion. Great player!#handball
— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) February 12, 2020
Ómar missti af úrslitakeppninni um danska meistaratitilinn í fyrra þar sem Aalborg stóð uppi sem sigurvegari. Hann lék heldur ekki með íslenska landsliðinu á EM í byrjun þessa árs.
Selfyssingurinn lék sinn fyrsta leik fyrir Aalborg í átta mánuði þegar liðið vann SønderjyskE, 28-23, 2. febrúar. Hann skoraði eitt mark og gaf eina stoðsendingu í leiknum.
Eftir tímabilið gengur Ómar til liðs við Magdeburg í Þýskalandi.