Brosið fer ekki af Sigrúnu Elfu, sem býr í Hveragerði en vinnur á Sólheimum í Grímsnes og Grafningshreppi eftir að týndi hringurinn fannst og er nú komin aftur á höndina á henni eftir 17 ára aðskilnað. Eiginmaður hennar er Ingólfur Guðnason, garðyrkjumaður. En hver er saga hringsins?
„Þegar ég varð þrítugt þá fékk ég þennan hring í þrítugs afmælisgjöf frá manninum mínum, hann er mjög sérstakur, ég held að það sé ekki til neinn svona hringur. Svo tíu árum seinna, ég hafði ekki notað hann mikið því hann hafði ekki passað á mig, ég var nýbúin að láta stækka hann og þá varð það ekki nóg, þannig að ég tek hann af mér og set á litla putta og ætla að nota hann þannig en þá var hann of víður“, segir Sigrún Elfa.
Svo fer Sigrún Elfa með dóttur sinni og bekknum hennar á Árbæjarafnið í Reykjavík í skoðunarferð og þá hefur hringurinn dottið af. Hún hafði mörgum sinnum samband við safnið til að spyrja um hringinn en hann hafði aldrei fundist.
„Ég sagði ekki manninum mínum frá þessu því ég skammaðist mín svo mikið fyrir að hafa týnt þessum fína hring. Svo er ég bara á föstudagskvöldi nýlega að skoða Facebook og skrolla niður og þá kemur allt í einu hringurinn í ljós, mér hitnaði bara allri, þetta var mjög sérstök tilfinning því ég hefði aldrei búist við að sjá hann aftur“, bætir Sigrún við.

Saga hringsins er ótrúleg.
„Já, allavega er hún gleðileg fyrir mig, mér finnst ofsalega gott að vera komin með hringinn, þá er maður ekki að pirra sig á því að hafa týnt honum“, segir Sigrún Elfa og hlær.