Rafíþróttir

Í beinni: Vodafonedeildin í CS:GO, Þór Akureyri mætir KR

Bjarni Bjarnason skrifar
Vodafonedeildin sett

Úrvalsliðin etja kappi í Vodafonedeildinni í CS:GO í kvöld. Fimmta umferð deildarinnar fer fram og eru hörku leikir í vændum.

Kvöldið verður opnað með leik Þórs og KR. Sterkt lið Þórs hefur átt erfitt uppdráttar í Vodafonedeildinni fyrstu umferðirnar en litu vel út í síðustu umferð er þeir sigruðu XY. Spennandi verður að sjá hvernig þeim farnast á móti liði taplausu liði KR.

Dusty sem trónir á toppi deildarinnar mæta XY í öðrum leik kvöldsins. XY hafa sýnt góða spilamennsku á köflum en Dusty hafa hingað til engan bilbug látið á sér finna.

Lokaleikur kvöldsins er Exile á móti Fylki. Lið Exile hefur vaxið með hverri umferð og er reynslan í deildinni að gera góða hluti fyrir þá. En Fylkir með töluvert reyndara lið hefur látið hvert topp liðið á fætur öðru hafa fyrir stigunum í deildinni hingað til.

Fyrsta viðureign kvöldsins hefst kl 19:30 og verður sýnd á Stöð 2 esport og hér á Vísi.

Leikir kvöldsins verða samkvæmt dagskrá hér að neðan.

19:30 Þór - KR

20:30 Dusty - XY

21:30 Exile - Fylkir

Útsending hefst kl 19:15 og hægt er að fylgjast með henni hérna.






×