Alþjóðlegur starfshópur sem vinnur gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, FATF-hópurinn svokallaði, mun koma saman á föstudag og funda um hvort Ísland komist af hinum svokallaða „gráa lista“ sem landið lenti á síðastliðið haust.
Ísland lenti á listanum þar sem stjórnvöld voru ekki talin geta sýnt fram á að varnir gegn peningaþvætti hér á landi væru í samræmi við kröfur hópsins.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir í samtali við ViðskiptaMoggann í dag að fulltrúar hópsins hafi gert vettvangsathugunn hér á landi í september síðastliðnum og vonast hún til þess að Ísland losni af listanum í kjölfar fundarins á föstudag.