Suárez fékk gult fyrir að kíkja á VAR-skjáinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. nóvember 2020 12:01 Benoit Bastien gefur Luis Suárez gult spjald fyrir að kíkja á myndbandsskjáinn sem dómarar nota á hliðarlínunni. epa/Maxim Shemetov
Luis Suárez, framherji Atlético Madrid, fékk gult spjald fyrir að kíkja á sjónvarpsskjá á hliðarlínunni í jafntefli spænska liðsins við Lokomotiv Moskvu, 1-1, í Meistaradeild Evrópu í gær. Félagi Suárez í úrúgvæska landsliðinu, José Giménez, kom Atlético yfir á 18. mínútu. Skömmu síðar fékk Lokomotiv vítaspyrnu sem Anton Miranchuk skoraði úr. Benoit Bastien, franskur dómari leiksins, dæmdi vítið á Héctor Herrera fyrir að handleika boltann innan vítateigs. Hann kíkti á VAR-skjáinn á hliðarlínunni áður en hann kvað upp dóm sinn. Bastien var ekki sá eini sem horfði á VAR-skjáinn því Suárez stalst einnig til þess að kíkja á hann yfir öxl dómarans. Bastien hafði ekki mikinn húmor fyrir þessu uppátæki Suárez og gaf honum gult spjald. Suárez lék allan leikinn fyrir Atlético sem er í 2. sæti A-riðils Meistaradeildarinnar með fjögur stig. Næsti leikur liðsins er gegn Lokomotiv á heimavelli 25. nóvember. Suárez, sem gekk í raðir Atlético frá Barcelona í sumar, hefur skorað fjögur mörk í sjö leikjum á tímabilinu.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Tengdar fréttir Mönchengladbach niðurlægði Shakhtar og Atletico fékk bara eitt stig í Rússlandi Borussia Mönchengladbach gerði sér lítið fyrir og skellti Shakhtar Donetsk, 6-0, í B-riðli Meistaradeildar Evrópu. Í A-riðlinum gerðu Lokomotiv Moskva og Atletico Madrid 1-1 jafntefli. 3. nóvember 2020 19:47 Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM fyrir fullri höll Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Enski boltinn Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Fleiri fréttir Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Sjá meira
Mönchengladbach niðurlægði Shakhtar og Atletico fékk bara eitt stig í Rússlandi Borussia Mönchengladbach gerði sér lítið fyrir og skellti Shakhtar Donetsk, 6-0, í B-riðli Meistaradeildar Evrópu. Í A-riðlinum gerðu Lokomotiv Moskva og Atletico Madrid 1-1 jafntefli. 3. nóvember 2020 19:47