Útgöngubann að nóttu tekur gildi á Ítalíu á morgun Atli Ísleifsson skrifar 4. nóvember 2020 10:17 Guiseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu. Alls hafa 759.829 manns greinst með kórónuveiruna á Ítalíu frá upphafi faraldursins. Getty
Fólki alls staðar á Ítalíu verður meinað að yfirgefa heimili sín milli klukkan 22 á kvöldin og til klukkan fimm á morgnana næstu vikurnar. Giuseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, hefur undirritað tilskipun um útgöngubannið, en með aðgerðunum er vonast til að hægt verði að draga úr útbreiðslu kórónuveirunnar í landinu. Útgöngubannið er liður í röð nýrra takmarkana ítalskra stjórnvalda sem verða kynntar síðar í dag og er þeim ætlað að gilda til 3. desember hið minnsta. Búist er við að takmarkanirnar verði misharðar eftir því hver staðan er í einstaka héruðum. Nú þegar hefur öllum líkamsræktarstöðvum, kvikmyndahúsum og leikhúsum í landinu verið gert að loka og er búist við að með nýjum aðgerðum yfirvalda verði krám, veitingastöðum og flestum verslunum víða einnig gert að loka. Slíkri starfsemi hefur að undanförnu verið heimilt að hafa opið til klukkan 18. AP segir að íbúum í sumum héruðum, þar sem staðan þykir sérstaklega slæm, verði meinað að fara út fyrir héraðsmörkin næstu tvær vikurnar. Á það meðal annars við um héraðið Lombardy. Alls hafa 759.829 manns greinst með kórónuveiruna á Ítalíu frá upphafi faraldursins. Þá hafa rúmlega 39 þúsund dauðsföll í landinu verið rakin til Covid-19.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ítalía Mest lesið „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Mótmæli við leik Íslands og Ísrael Innlent Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Innlent Albanska manninum fylgt úr landi í fyrramálið Innlent Dæmdir í tengslum við einn stærsta stuld Íslandssögunnar Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira