Páfi heitir því að uppræta misnotkun innan kirkjunnar Kjartan Kjartansson skrifar 11. nóvember 2020 20:37 Frans páfi við almenna áheyrn í Páfagarði í dag. Vísir/EPA
Frans páfi hét því að uppræta kynferðislega misnotkun innan veggja kaþólsku kirkjunnar í kjölfar umfangsmikillar skýrslu um kynferðisbrot bandarísks fyrrverandi kardinála sem var birt í gær. Forverar Frans í embætti veittu kardinálanum framgang þrátt fyrir að þeim væri kunnugt um ásakanir á hendur honum. Ummæli páfa í dag voru þau fyrstu frá því að skýrslan um kynferðisbrot Theodore McCarrick, fyrrverandi kardinála, var gerð opinber í gær. McCarrick er talinn hafa misnotað börn og unga karlmenn þegar hann var prestur í New York á áttunda áratug síðustu aldar. Hét Frans því að uppræta „þessa illsku“ úr kirkjunni, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Jóhannes Páll páfi annar hækkaði McCarrick í tign árið 2000 þrátt fyrir ásakanir um kynferðisbrot. Trúði hann neitunum McCarrick og bandarískra biskupa sem veittu rangar eða misvísandi upplýsingar um hverju eftirgrennslan þeirra hefði skilað. Átta árum síðar hafnaði Benedikt sextándi tillögum ráðgjafa sinna um að kirkjan rannsakaði McCarrick. Þess í stað varaði hann kardinálann við og sagði honum að hafa hægt um sig.
Páfagarður Kynferðisofbeldi Trúmál Kynferðisbrot innan kaþólsku kirkjunnar Mest lesið Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Innlent Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Innlent Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Erlent Bein útsending: Deildarmyrkvi á sólu Innlent Tala látinna komin yfir þúsund Erlent Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík Innlent Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Erlent RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Innlent Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Innlent „Það er skítkalt hérna“ Erlent Fleiri fréttir Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sænskur blaðamaður handtekinn í Tyrklandi Fyrsta árás Ísraelshers í Líbanon eftir vopnahlé Óttast að mörg hundruð séu látin Áhöfn kafbátsins sem sökk í Rauðahafi yfirheyrð Albanese boðar til þingkosninga 43 saknað eftir 7,7 stiga skjálfta í Mjanmar Beinir spjótum sínum að Smithsonian og „sögufölsunum“ Segir gömlu sambandi Kanada við Bandaríkin lokið Lagður inn á sjúkrahús vegna aukaverkana krabbameinsmeðferðar Ísraelar kvörtuðu yfir „Signalgate“ Ný ríkisstjórn í höfn á Grænlandi Nýjum drögum frá Trump lýst sem ránstilraun Ætlar að fjölga hermönnum á norðurslóðum Myndaði segulljós Neptúnusar í fyrsta skipti Sex taldir af eftir kafbátaslys Biður til Guðs að Bandaríkin gefi ekki eftir Segjast ræða um að opna aftur Nord Stream-gasleiðslurnar Hundruð tapa milljónum í viskísvikamyllu Samþykkti umdeilt bann við hælisumsóknum Suðurkóresk börn send úr landi eins og „farangur“ Hyggst leggja 25 prósent toll á allar innfluttar bifreiðar Trump um Grænland: „Við verðum að eignast þetta land“ Rétta yfir Bolsonaro fyrir valdaránstilraun Sagði nákvæmlega hvenær árásirnar myndu hefjast Mesta endurnýjun vopnabúrs Svíþjóðar frá kalda stríðinu Sjá meira