Torfi flytur sig yfir í Árbæinn Sindri Sverrisson skrifar 26. nóvember 2020 17:01 Torfi Tímoteus Gunnarsson er kominn í appelsínugula búninginn. Twitter/@fylkirfc Fylkismenn hafa fengið liðsstyrk úr Grafarvoginum því Torfi Tímoteus Gunnarsson er mættur í Árbæinn frá Fjölni.
Fylkismenn hafa fengið liðsstyrk úr Grafarvoginum því Torfi Tímoteus Gunnarsson er mættur í Árbæinn frá Fjölni. Torfi skrifaði undir samning til tveggja ára við Fylki. Hann er 21 árs miðvörður sem lék sína fyrstu leiki í úrvalsdeild árið 2017. Torfi er uppalinn hjá Fjölni og hefur leikið með liðinu allan sinn feril utan ársins 2019 þegar hann var að láni hjá KA á meðan að Fjölnir lék í næstefstu deild. Hann hefur því leikið fjögur síðustu tímabil í efstu deild. Torfi kom hins vegar lítið við sögu hjá Fjölni á síðustu leiktíð, þegar meiðsli settu stórt strik í reikninginn hjá honum. Hann lék aðeins sex leiki, þar af fjóra í byrjunarliði. Fjölnir féll úr Pepsi Max-deildinni en Fylkir endaði í 6. sæti og var í harðri baráttu um Evrópusæti þegar mótið var blásið af. Torfi á að baki 29 leiki með yngri landsliðum Íslands, þar af níu með U21-landsliðinu. Fjölnir gekk fyrr í vikunni frá samningi við tvo leikmenn sem munu spila með liðinu í Lengjudeildinni. Hinn fjölhæfi og reynslumikli Dofri Snorrason kom frá Víkingi R. og sóknarmaðurinn Andri Freyr Jónasson kom frá Aftureldingu þar sem hann var fyrirliði. Dofri og Andri Freyr í Fjölni (Staðfest) https://t.co/kIcDBN8yx8— Fótbolti.net (@Fotboltinet) November 24, 2020
Pepsi Max-deild karla Fylkir Mest lesið Jafngildi 20 Þjóðarhalla við Hringbraut svo ein á að geta risið í Laugardal Sport Nauðgunardómurinn ógildur og Dani Alves er frjáls ferða sinna Sport Depay stóð á boltanum og slóst áður en hann lyfti titlinum Fótbolti Víkingar rúlluðu KR-ingum upp Fótbolti Lét dóttur sína hlaupa þrátt fyrir að hún ætti erfitt með að anda Sport Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og margt fleira Sport Sabonis ekki með Litháen á EM Körfubolti Markasúpa í Mjólkurbikarnum Fótbolti Segir að Schumacher sé ófær um að tala: „Staðan er mjög sorgleg“ Formúla 1 Andri Már markahæstur en Ýmir hafði betur í Íslendingaslagnum Handbolti Fleiri fréttir Frumraun Gylfa í beinni í kvöld „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari „Mjög krefjandi tímabil framundan“ „Lærir með hverju árinu hvað maður á að hlusta á og hvað ekki“ Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Nýi markvörður KA kom snemma inn af bekknum í fyrsta leik Ísabella Sara sögð á leið til Rosengård Besta auglýsing Aftureldingar: „Þetta er enginn helvítis Pizzabær“ „Veturinn eins og best verður á kosið“ Besta-spáin 2025: Í túninu heima Víkingar framlengja við „besta markmanninn í Bestu deildinni“ Þór/KA vann í vítaspyrnukeppni og mætir Breiðabliki í úrslitaleik LUÍH: Heimir var um 90 mörkum frá 100 marka veggnum Strákar á Selfossi söfnuðu fé fyrir jafnaldra sinn í HK „Búnir að missa of marga af þessum heimastrákum“ Besta-spáin 2025: Drepþreyttir á deildaflakkinu Gísli Laxdal snýr heim á Skagann „Ég lét menn aðeins heyra það í hálfleik“ Sjáðu mörkin sem tryggðu Val Lengjubikarinn Uppgjörið: Fylkir - Valur 2-3 | Endurkoma og Valur vann Lengjubikarinn Andrea skaut Blikum áfram í úrslitaleikinn Pedersen framlengir við Val Sjá meira