Flugvirkjar höfnuðu sáttatillögu ríkissáttasemjara eftir ríflega tíu klukkustunda samningafund í gær, sem fól í sér að núgildandi kjarasamningur yrði framlengdur til loka næsta árs, en flugvirkjar fóru fram á samning með tengingu til þriggja ára. Meðallaun flugvirkja árið 2019 að frádregnum launatengdum gjöldum voru tæplega 1,8 milljón og grunnlaun að meðaltali 856 þúsund. Heildarlaun flugvirkja í dagvinnu voru að meðaltali 908 þúsund krónur. Deilan fer fyrir gerðardóm ef ekki semst fyrir fjórða janúar, samkvæmt frumvarpi dómsmálaráðherra.
„Við gáfum mikið eftir og vorum til í að ganga ansi langt í að ná samningum,“ sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. „Staðan var þannig hjá Landhelgisgæslunni var þannig að starfsemin getur ekki beðið lengur. Þetta er starfsemi sem varðar almannaöryggi fólks og sjófarenda og við ætlum ekki að bíða lengur eftir því,“ sagði hún og bætti við að samstaða hafi náðst um málið í ríkisstjórn.
Georg tekur undir alvarleika stöðunnar. „Það eru auðvitað vonbrigði að ekki skuli hafa náðst samningar en við fögnum því að fá okkar starfsmenn til vinnu,“ segir hann. Miklar áhyggjur hafi verið af uppsöfnuðu viðhaldi og því hafi lagasetningin verið nauðsynleg.
„Ástandið er algjörlega óboðlegt og alveg nauðsynlegt að rjúfa þennan vítahring.“
Þá segir hann að áhrifa verkfallsins muni gæta í nokkurn tíma. „Það tekur langan tíma að rétta starfsemina af en við náum vonandi að koma einni þyrlu í loftið á laugardagskvöld eða sunnudag ef við erum heppin en þessa verkfalls mun gæta alveg fram ú febrúar.“
Aðspurður segist hann eiga von á að fólk mæti til vinnu og vonar að málið leysist farsællega.
„Ég á nú von á að menn jafni sig og nái áttum og að við getum unnið saman eins og menn,“ segir Georg.
Formaður Flugvirkjafélags Íslands vildi ekki veita fréttastofu viðtal þegar eftir því var leitað.