Biden vann stórsigur í þremur ríkjum Atli Ísleifsson skrifar 18. mars 2020 06:28 Joe Biden ávarpaði Demókrata frá heimili sínu í Wilmington.
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, vann stórsigur á Bernie Sanders í forkosningum Demókrataflokksins í þremur ríkjum í gær. Fátt virðist nú geta komið í veg fyrir að Biden verði forsetaefni Demókrata í forsetakosningunum í nóvember næstkomandi. Forkosningar fóru fram í Flórída, Illinois og Arizona, en upphaflega stóð til að forkosningar færu einnig fram í Ohio, en ákveðið var að fresta þeim vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Í sigurræðu sinni beindi Biden orðum sínum að sérstaklega til stuðningsmanna Sanders þar sem hann bað um stuðning þeirra. Með um 300 manna forskot á Sanders Þó að talningu sé ekki lokið í Flórída virðist Biden hafa fengið um 62 prósent atkvæða þar, en Sanders um 23 prósent. Í Illinois virðist Biden hafa fengið um 59 prósent atkvæða, en Sanders 36 prósent og í Arizona virðist Biden hafa fengið rúmlega 42 prósent atkvæða, en Sanders um 30 prósent. Í Flórída er barist um 219 landsfundarfulltrúa, í Illinois 155, og í Arizona 67. Alls hefur Biden hlotið flest atkvæði í forkosningum eða forvali Demókrata í sextán af 21 ríki. Eftir forkosningar næturinnar hefur Biden tryggt sér 1.119 landsfundarfulltrúa, en Sanders 815.
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Innlent Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Innlent Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Innlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira