Heilbrigðisstarfsmann og lesanda Vísis rak í rogarstans þegar hann brá sér í Hagkaup í Skeifunni í kvöld. Um tíu til fimmtán manns voru með skóflurnar á lofti í Nammilandi þar sem fólk mokar sælgæti af ýmsum toga í poka og greiðir eftir vigt.
Snertismit er helsta smitleið kórónuveirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum sem almannavarnir um heim allan berjast við þessi dægrin. Þetta hefur Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir ítrekað komið inn á í orði á daglegum upplýsingafundum vegna veirunnar og má sömuleiðis lesa sér til um víða, svo sem á Covid.is.

Hagkaup hefur hingað til ekki séð ástæðu til þess að loka nammilandinu þótt verslunin hafi gripið til annarra leiða til að takmarka smithættu. Má nefna að brauðskurðarvélin er til dæmis lokuð vegna smithættu.
Tímamóta afsláttur í nammilandi
Á skilti í verslun Hagkaupa í Skeifunni kemur fram að ákveðið hafi verið að loka nammilandinu tímabundið. Ástæðan kemur ekki fram en má ætla að um viðbrögð vegna kórónuveirunnar sé um að ræða.
Nammilandi verður þó ekki lokað fyrr en á þriðjudag ef marka má auglýsinguna. Þannig auglýsir Hagkaup 70 prósent afslátt á nammi og verður afslátturinn í gildi til mánudags. Afslátturinn framlengist því inn í vikuna.

Neytendur eru þó beðnir um að nota einnota hanska í nammilandinu líkt og í salatbar og bakaríi.
Lesandi Vísis tók ekki eftir því hvort nammikaupendur í Hagkaupum í kvöld hefðu allir sem einn verið með hanska á sér. Einhverjir voru þó með andlitsgrímur.
Grímur og hanskar geta veitt falskt öryggi
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur verið spurður út í öryggi sem grímur og hanskar veiti. Hefur hann haft á orði að örygið geti verið falskt. Grímur og hanskar geti vissulega virkað.
Grímur verði hins vegar gagnlausar um leið og þær blotna, sem þær gera smám saman við öndun, og þá geri þær lítið sem ekkert gagn. Þá sé lítið gagn í þeim til að verja sig, það sé frekar til að verja aðra.
Varðandi hanskana sé ákveðin kúnst að fara rétt úr þeim svo að smit berist ekki af þeim og í viðkomandi.

„Þannig að það getur gefið falskt öryggi,“ ítrekaði Þórólfur á upplýsingafundi í vikunni.
„Ég held að þeir sem eru veikir fyrir ættu helst að reyna að fá einhvern til að fara fyrir sig út í búð.“
Skorar á Hagkaup að sýna samfélagslega ábyrgð strax
Lesandinn vill skora á Hagkaup að sýna samfélagslega ábyrgð strax í stað en ekki á þriðjudaginn.
Hann telur að það standist ekki nokkra skoðun að hvetja viðskiptavini til að auka líkur á snertismiti með viðbótarafslætti um helgina